366. spurningaþraut: Hver skrifaði ævintýri eftir H.C.Andersen „ósjálfráðri skrift“?

366. spurningaþraut: Hver skrifaði ævintýri eftir H.C.Andersen „ósjálfráðri skrift“?

Hér er þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir karl sá er birt­ist á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hver skrif­aði skáld­sög­una Gælu­dýrin?

2.   Hver er nyrsti þétt­býl­iskjarni á Íslandi?

3.   En hvað er vest­asta þétt­býlið?

4.   Robert Downey jr. leikur eitt af aðal­hlut­verk­unum í kvik­myndum Marvel Comics um hina svo­nefndu Avengers. Hvað heitir ofur­hetju­per­sónan sem hann leikur?

5.   Í rúm 500 ár hafa danskir kóngar ein­göngu heitið tveim nöfnum — þar til kom að núver­andi drottn­ingu. Hvaða tvö karl­mannsnöfn eru það?

6.   Hello — Rolling in the Deep — Someone Like You. Þetta eru afar vin­sæl lög afar vin­sæls tón­list­ar­manns. Hver er tón­list­ar­mað­ur­inn sem er upp á sitt besta um þessar mundir?

7.   Annað lag sem hét Hello var hins vegar gefið út árið 1983 á plöt­unni Can't Slow Down. Það var sungið af tón­list­ar­manni sem þá var mjög vin­sæll. Hvað hét hann?

8.   Fjöl­margar borgir til forna hétu Alex­andría. Í hvaða landi var sú stærsta? — og er raunar ennþá til.

9.   Einn af þekkt­ustu rit­höf­undum Íslend­inga á fyrri hluta 20. aldar hóf feril sinn með því að skrifa ævin­týri í nafni H.C.And­er­sens, Snorra Sturlu­sonar, Jónasar Hall­gríms­sonar og fleiri stór­karla, og hélt hann því fram að hinir látnu bók­mennta­höfð­ingjar skrif­uðu þetta gegnum sig. Gallinn var sá að sögur þessi og ævin­týri þóttu mjög klénn sam­setn­ingur. Hver var þessi höf­undur?

10.   Hvaða lið varð um dag­inn deild­ar­bik­ar­meist­ari í fót­bolta karla á Englandi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi hópur kom saman í Iðnó dag nokkurn fyrir ára­tug. Til að gera hvað?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Bragi Ólafsson.

2.   Rauf­ar­höfn. Hér var spurn­ing um syðsta þétt­býl­iskjarn­ann, en það munar svo litlu á tveim þeim syðstu að það er eig­in­lega ekki sann­gjarnt að spyrja að því.

3.   Pat­reks­fjörður.

4.   Iron Man. Downey leikur Tony Stark sem síðan bregður sér í bún­ing ofur­hetju og hér er spurt um nafnið á „ofur­hetju­per­són­unni“.

5.   Friðrik og Kristján.

6.   Adele.

7.   Lionel Ritchie.

8.   Egifta­landi.

9.   Guð­mundur Kamban.

10.   Manchester City.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Mads Mikk­el­sen. Eft­ir­nafnið dugar í þetta sinn.

Á neðri mynd­inni er stjórn­laga­ráð sem afhenti Alþingi í Iðnó nýja stjórn­ar­skrá sem síðan var borin undir ráð­gef­andi þjóð­ar­at­væði og sam­þykkt, en hefur reyndar ekki verið stað­fest af stjórn­mála­mönnum.

***

Og hér er aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár