365. spurningaþraut: Eitt ár frá fyrstu þraut

365. spurningaþraut: Eitt ár frá fyrstu þraut

Síðasta þraut, sú 364.

***

Þetta er 365. spurn­inga­þrautin, sem merkir að þær hafa birst á vef Stund­ar­innar í eitt ár. Af því til­efni eru allar spurn­ingar til­eink­aðar þessum degi. Jafn­framt ætla ég að end­ur­birta síðar í dag fyrstu þraut­ina frá því fyrir ári.

En fyrri auka­spurn­ing er svona:

Í dag heldur upp á 65 ára afmælið sitt banda­rísk leik­kona og ljós­mynd­ari sem var á árunum 1981-1983 í sam­bandi við Andrés Breta­prins, næstelsta son Elísa­betar drottn­ingar. Hún var rægð ósleiti­lega og meðal ann­ars sögð hafa verið klám­mynda­leik­kona, en það var fjarri öllum sanni, þótt hún hafi leikið í einni „ljós­blárri“ mynd. Elísa­betu lík­aði vel við stúlk­una en lagði þó að Andrési að slíta sam­bandi við hana. Sem hann og gerði. Hvað heitir afmæl­is­barnið?

*** 

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða stjörnu­merki dýra­hrings­ins er í gangi í dag, 26. apríl?

2.   Í dag heldur upp á 51s árs afmælið sitt kona ein sem bar ætt­ar­nafnið Knavs, þegar hún fædd­ist, en breytti nafn­inu í Knauss þegar hún gerð­ist alþjóð­leg fyr­ir­sæta. Árið 2005 breytt­ist eft­ir­nafn hennar svo aftur þegar hún gekk í hjóna­band og tók upp nafn eig­in­manns­ins. Þau hjón eign­uð­ust eitt barn. Hvað heitir þetta afmæl­is­barn dags­ins?

3.   Á þessum degi árið 1986 varð eitt skelfi­leg­asta slys ver­ald­ar­sög­unnar, sem menn hafa meira að segja ekki enn bitið úr nál­inni með. Hvar varð það slys?

4.   Í dag heldur upp á 49 ára afmæli sitt íslenskur fót­bolta­maður. Hann spil­aði tæp­lega 50 lands­leiki í karla­flokki og skor­aði tölu­vert af mörkum en verður ævin­lega kunn­astur fyrir frægt mark sem hann skor­aði á Laug­ar­dals­velli 5. sept­em­ber 1998, en það mark gerði Íslend­ingum kleift að ná 1-1 jafn­tefli gegn nýbök­uðum heims­meist­urum Frakka. Hvað heitir afmæl­is­barnið?

5.   Á þessum degi árið 2004 var lagt fram á Alþingi frum­varp sem varð svo umdeilt að þá var gripið til ákveð­ins ráðs í íslenskri stjórn­sýslu, sem aldrei hafði verið gert áður. Hvað var þetta frum­varp kallað?

6.   Á þessum degi árið 1894 fædd­ist í Alex­andríu í Egifta­landi piltur einn. Hann var reyndar ekki ætt­aður frá Egifta­landi og flutt­ist þaðan á tán­ings­árum til ætt­lands for­eldra sinna. Maðurinn er frægastur fyrir flug­ferð sem hann fór þann 10. maí 1941. Flug­ferðin mælt­ist afar illa fyrir eig­in­lega alls staðar og mað­ur­inn þurfti lengi að súpa seyðið af henni. Hvað hét hann?

7.   Á þessum degi árið 1564 var nokkur færður til skírnar á Englandi. Senni­lega var hann fæddur nokkrum dögum fyrr. Maðurinn var af óbreyttu alþýðu­fólki en hefur lengi verið einn þekkt­asti maður í heim­inum. Hvað var hann skírður 26. apríl 1564?

8.   Þennan dag árið 1865 lést John Wilkes Booth nokkrum dögum eftir afdrifa­ríkan atburð sem hann bar ábyrgð á. Hvaða atburður var það?

9.   Þann 26. apríl 2019 var frum­sýnd í Banda­ríkj­unum kvik­mynd, sem sló öll aðsókn­ar­met og varð á end­anum tekju­hæsta kvik­mynd sög­unnar — met sem hún tók af mynd­inni Avatar. Þetta var fram­halds­mynd ann­arrar bíó­myndar frá árinu áður. Hvað heitir þessi vin­sæla kvik­mynd?

10.   Á þessum degi árið 1937 var gerð alræmd loft­árás á bæ nokkurn. Hvað hét bær­inn?

***

Síðari auka­spurn­ing.

Þann 26. apríl 1925 var maður nokkur kos­inn fyrsti for­seti í ríki einu, og átti svo eftir að gegna emb­ætt­inu til dauða­dags. Á mynd­inni að neðan má sjá stuðn­ings­menn hans fagna kjöri hans. Hvað hét hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Nautið.

2.   Melania Trump.

3.   Kjarn­orku­slysið í Tjerno­byl.

4.   Ríkarður Daðason.

5.   Fjöl­miðla­frum­varpið.

6.   Rudolf Hess, stað­geng­ill Adolfs Hitlers.

7.   William Shakespe­are.

8.   Hann myrti Lincoln Banda­ríkja­for­seta.

9.   Avengers: Endgame.

10.   Guernica.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Konan á efri mynd­inni heitir Koo Stark.

For­set­inn nýkjörni sem spurt er um í seinni spurn­ing­unni var Hinden­burg fyrsti for­seti Þýska­lands.

***

Þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár