Kína lætur skína í tennurnar

Kín­verski drek­inn er far­inn að bíta frá sér. Spáð er yfir­vof­andi stríðs­á­tökum Kínverja og Banda­ríkj­anna.

Kína lætur skína í tennurnar
Maðurinn í miðið Xi Jinping, æðstráð­andi í Kína, klappar ásamt öðrum full­trúum kín­verska Komm­ún­ista­flokks­ins breyttum kosn­inga­lögum í Hong Kong 10. mars síð­ast­lið­inn. Mynd: NICOLAS ASFOURI / AFP

Harðorð yfir­lýs­ing um Ísland er ein birt­ing­ar­mynd breyttrar utan­rík­is­stefnu Kínverja. Harð­línu­menn innan Komm­ún­ista­flokks­ins virð­ast hafa náð und­ir­tök­unum og reka sífellt harð­ari stefnu jafnt inn­an­lands sem utan. Kínversk stjórn­völd ógna nágrönnum sínum, hafna allri gagn­rýni vegna mann­rétt­inda­brota og ætla sér að koll­varpa núver­andi skipu­lagi alþjóða­mála að mati sér­fræð­inga.

Í júlí á þessu ári verða liðin 100 ár frá stofnun kín­verska Komm­ún­ista­flokks­ins. Stofn­með­limir voru aðeins um fimm­tíu tals­ins og hitt­ust í gömlu og hrör­legu húsi í Sjanghæ. Innan við þremur ára­tugum síðar var þessi félags­skapur búinn að sölsa undir sig öll völd í þessu fjöl­menn­asta ríki heims, reka burt inn­rás­ar­lið Japana og stofna komm­ún­ista­stjórn bylt­ing­ar­leið­tog­ans Mao Zedong. 

Til að skilja stöðu Komm­ún­ista­flokks­ins í kín­versku sam­fé­lagi, bæði þá og nú, er nauð­syn­legt að átta sig á því sem á undan hafði gengið. Kín­verjar tala um tíma­bilið frá 1839 til 1949 sem ‘Öld nið­ur­læg­ing­ar­innar’ og líta á það sem eitt sorg­leg­asta tíma­bil þess­arar mörg …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár