Íslenskir þingmenn þurfa ekki að gefa upp eignir í fjárfestingasjóðum

Enginn af þeim fimm ráð­herrum í rík­is­stjórn Íslands sem svar­aði hefur fjár­fest í fjár­fest­ing­ar­sjóðum. Aðeins einn ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins svar­aði spurn­ingum um fjár­fest­ingar í fjár­fest­ing­ar­sjóðum. Vilji er til þess hjá flestum ráð­herrum sem svör­uðu að breyta reglum um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum þing­manna.

Íslenskir þingmenn þurfa ekki að gefa upp eignir í fjárfestingasjóðum
Vilji fyrir breyt­ingum Fjórir af fimm ráð­herrum sem svör­uðu spurn­ingum Stund­ar­innar eru opnir fyrir breyt­ingum á reglum um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum þing­manna. Rík­is­stjórnin sést hér á rík­is­ráðs­fundi með Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta.

Fimm ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni telja að skoða eigi að breyta reglum um upp­lýs­inga­gjöf um fjár­hags­lega hags­muni þing­manna þannig að þær nái einnig til per­sónu­legra fjár­fest­inga þeirra í fjár­fest­ing­ar­sjóðum. Samkvæmt núgild­andi reglum er eign­ar­hald þing­manna í slíkum sjóðum, sem mögu­lega fjár­festa í mörgum ólíkum fyr­ir­tækjum, und­an­skilið upp­lýs­inga­gjöf þeirra til Alþingis um per­sónu­leg fjár­mál þeirra. Á sama tíma þurfa þing­menn að til­greina eign­ar­hald sitt á hluta­bréfum ef mark­aðsvirðið er yfir einni milljón. Fjöl­margir fjár­fest­ing­ar­sjóðir eru reknir á Íslandi í ýmsum fyr­ir­tækjum og nægir að nefna til dæmis sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki Arion banka, Stefni. 

„Eitt af atriðum sem ættu að koma til álita við end­ur­skoðun á reglum um hags­muna­skrán­ingu alþing­is­manna á vegum þings­ins“
Katrín Jak­obs­dóttir

Katrín: Ætti að vera kannað við næstu endurskoðun

Þeir ráð­herrar sem vilja skoða breyt­ingar á regl­unum hvað þetta varðar eru Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra, Guð­mundur Ingi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár