120 þúsund fórust við skurðgröft fyrir 2.500 árum — eða hvað?

Súez-skurðurinn var í sviðs­ljósinu eftir að risa­skipið Ever Given strandaði þar. Þessi merkilegi skurður var tekinn í notkun 1869 en í mörg þúsund ár höfðu menn leitast við að tengja Miðjarðarhaf og Rauða­hafið með því að grafa skurð með handafli frá Nílar­fljóti um Bitruvötn og svo til sjávar við Súez-flóa.

Neku 2. var konungur Egifta­lands um 600 fyrir upphaf tímatals. Gríski sagna­ritarinn Heródótus skrifaði um 150 árum síðar að hann hefði verið kominn mjög áleiðis með að grafa skurð frá Níl yfir í Rauða­hafið um hin svonefndu Bitruvötn. Það hefði tekið fjóra daga að sigla eftir skurðinum öllum og svo breiður hefði hann verið að tvær galeiður af fullri stærð hefðu getað siglt þar hlið við hlið.

Neku virðist þó ekki hafa látið klára skurðinn því spámaður kom fram sem upplýsti að allt erfiði kóngs myndi á endanum bara koma „villimönnum“ að gagni – það er að segja útlendingum.

Þá höfðu, að sögn Heródótusar, 120 þúsund manns látið lífið við skurð­gröftinn, en líklega verður að telja það nokkrar ýkjur. Þó verður að reikna með að mjög margir kunni að hafa farist. Vinnan var eflaust hræðilega erfið, enda bara grafið með skóflum og öðrum hand­verkfærum.

Heródótus segir líka …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár