Siðanefnd RÚV úrskurðar Helga Seljan brotlegan vegna svara til Samherja

Siðanefnd RÚV vísaði frá málum eða taldi ekki um brot að ræða vegna ummæla tíu starfs­manna um Samherja. Ummæli Helga Seljan voru talin fela í sér alvarlegt brot. Meðal ummælanna eru svör hans til stjórn­enda Samherja eftir umfjöllun félagsins um hann.

Helgi Seljan
Helgi Seljan Siða­nefndin telur aðeins að ummæli Helga um Samherja feli í sér alvar­legt brot. Mynd: Kveikur

Siðanefnd Ríkis­útvarpsins, sem var endur­reist vegna kæru Samherja gegn ellefu starfs­mönnum, hefur komist að þeirri niður­stöðu að einn starfs­mannanna, Helgi Seljan, frétta­maður Kveiks, hafi brotið „alvarlega“ gegn siða­reglum með því að gefa upp persónu­lega afstöðu sína í afmörkuðum álita­málum á samfélags­miðlum, meðal annars með því að svara stjórn­endum Samherja.

Ummæli tíu annarra starfs­manna RÚV eru ekki talin fela í sér brot eða málum þeirra vísa frá.

Ummæli Helga sem siða­nefndin gerði athuga­semdir við eru þessi:

„Vonandi er þessi árétting of einhliða fyrir hinn ballanseraða forstjóra Samherja.“

„Sæll Björgólfur Jóhannsson. Nú hef ég fylgst með þér fyrstu daga þína í starfi og vandræðum þínum við að höndla einfaldar stað­reyndir um eignar­hald fyrir­tækisins sem þú stýrir; samanber þetta með Heinaste um daginn.“

„... En af því að ykkur virðist ekki auðlesið internetið er hér ein grein sem þú gætir byrjað á að lesa gæskur ... Þú þarft ekkert að biðja mig afsökunar samt.“

„Rosalega hlýtur þeim að líða vel með sig núna „andlitunum“ sem tóku þátt í að rétta við ímynd þessa kompanís eftir að upp um það komst.“

„Hér er hún þá líklegast komin, stærsta efnahags­aðgerð íslenskra stjórn­valda vegna Covid-19“ skrifaði Helgi um frétt af Kjarnanum með fyrir­sögninni „Samherji fær að sleppa við yfirtöku­skyldu á Eimskip“.

Loks skrifaði hann um yfirtöku­tilboð Samherja í Eimskip í október. „Húrra fyrir Seðla­banka­stjóranum sem lét spila með sig… what a joke“ og „Það að þeim hafi verið heimilað að sleppa undan yfirtöku­skyldu í mars, vegna Covid, var galið. Og sýnir sig núna að hafa verið hreinn fyrir­sláttur.“

Þetta kemur fram í niður­stöðu siða­nefndar Ríkis­útvarpsins sem skilað var í dag og Stundin hefur undir höndum. Í fjörutíu blaðsíðna úrskurði sem Gunnar Þór Pétursson, Páll Rafnar Þorsteinsson og Sigrún Stef­ánsdóttir skrifa undir er kæra Samherja vegna ummælanna reifuð og fjallað um meint brot ellefu starfs­manna RÚV vegna birtingar færslna þeirra á samfélags­miðlum sem snúa að sjávar­útvegs­fyrirtækinu.

Í úrskurðar­orðum kemst siða­nefndin að þeirri niður­stöðu að tilgreind ummæli Helga Seljan feli í sér alvarlegt brot gegn siða­reglum RÚV.  Ákveðin ummæli og deilingar Freys Gígju Gunnars­sonar, Aðalsteins Kjartans­sonar, Sunnu Valgerðar­dóttur og Láru Ómars­dóttur eru ekki talin fela í sér brot á siða­reglum. Málinu er vísað frá hvað varðar Snærós Sindra­dóttur og hvað varðar ummæli, og deilingar eftir atvikum Aðalsteins, Freys Gígju, Helga, Sunnu, Láru, Rakelar Þorbergs­dóttur, Sigmars Guðmunds­sonar, Stígs Helga­sonar, Tryggva Aðalbjörns­sonar og Þóru Arnórs­dóttur dagana 11. og 12. ágúst 2020 sem komu í kjölfar myndbands Samherja 11. ágúst.

Skýr og persónuleg afstaða falin í ummælunum

Í úrskurðinum eru tiltekin nokkur ummæli Helga sem beinast persónu­lega að fyrirsvars­mönnum Samherja.

„Telja verður að með þessum ummælum sínum, sérstak­lega þegar þau eru saman tekin, en þó ekki aðeins, hafi Helgi Seljan gerst hlut­drægur og gengið lengra en það svigrúm sem hann hafi annars til þess að deila fréttum og fylgja þeim eftir með gagnrýnum spurningum eða ummælum, sambærilegum þeim sem hann myndi viðhafa sem frétta­maður, jafnvel þó slíkt væri gert í eigin nafni,“ segir í úrskurðinum. „Því er það mat siða­nefndarinnar að í ofan­greindum ummælum felist skýr og persónuleg afstaða í málefni kæranda, sem 4. mgr. 3. gr. siða­reglnanna er ætlað að taka til, og því um að ræða brot á greininni.

Hvað varðar alvarleika brots Helga Seljan, verður að taka tillit til þess að ákvæðum siða­reglnanna hefur ekki verið beitt fyrr, sem  og að ekki liggja fyrir skýrar leið­beiningar frá RÚV um hvernig fréttmenn eigi að haga tjáningu sinni á samfélags­miðlum. Á móti kemur að hér er um að ræða ítrekuð tilvik yfir langan tíma. Í því ljósi telur siða­nefndin að brot Helga sé alvarlegt, á mæli­kvarða 7. gr. starfs­reglna siða­nefndarinnar (ámælis­vert, alvarlegt eða mjög alvarlegt).“

Sögðu ranglega að Helgi hefði falsað skýrslu

Samherji hefur birt fjölda færsla á vefsíðu sinni um RÚV og starfs­menn þess síðan Kveikur, Stundin, Al Jazeera og Wikileaks fjölluðu í nóvember 2019 um mútu­greiðslur fyrir­tækisins til þess að komast yfir hesta­makrílskvóta í Namibíu.

Megin­hluti ummælanna voru viðbrögð starfs­manna RÚV við mynd­böndum Samherja, sem meðal annars fjölluðu um Helga. Í þætti Samherja, þar sem rætt var við starfs­menn og samstarfs­aðila Samherja og birt leyni­upptaka af samtali við Helga, var hann sakaður um að hafa falsað skýrslu Verðlags­stofu skipta­verðs í umfjöllun sinni í Kastljósi um rannsókn Seðla­bankans á Samherja árið 2012. 

Verðlags­stofa fann síðar þriggja blaðsíðna skjal sem unnið var af starfs­manni og reyndist vera það sem birt var í Kastljós­þættinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár