Þjónusta þjóðkirkjunnar fest í lög

Ekki er minnst á aðskilnað ríkis og kirkju í nýju frum­varpi um þjóð­kirkj­una. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra boð­aði að vinna við slíkt yrði hafin árið 2020. Sjálf­stæði kirkj­unnar er eflt, en henni falið að veita þjón­ustu um land allt.

Þjónusta þjóðkirkjunnar fest í lög
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Dóms­mála­ráð­herra hefur lagt nýtt frum­varp um þjóð­kirkj­una fram á Alþingi. Mynd: xd.is

Nýtt frum­varp Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra um þjóð­kirkj­una mun auka sjálf­stæði hennar og færa ákvörð­un­ar­vald yfir henni að mestu leyti til kirkju­þings. Hefur Áslaug Arna talað fyrir aðskiln­aði ríkis og kirkju og boð­aði að vinna við slíkt færi af stað í fyrra, en ekki er minnst á aðskilnað í frum­varp­inu.

Frum­varpið var lagt fram á Alþingi í vik­unni og var samið af nefnd á vegum kirkju­þings í sam­vinnu við ráðu­neytið. Er efni þess liður í að auka sjálf­stæði þjóð­kirkj­unnar í mál­efnum sínum og fjár­málum, rétt eins og samn­ingur um árlega 2,7 millj­arða króna gagn­greiðslu frá ríki til kirkju til árs­ins 2034.

Nafni þjóð­kirkj­unnar er einnig breytt úr „íslenska þjóð­kirkjan“ í „þjóð­kirkjan á Íslandi“. Er það nafn það sama og kemur fram í 62. grein stjórn­ar­skrár­innar þar sem tengsl ríkis og kirkju eru skýrð: „Hin evang­eliska lút­erska kirkja skal vera þjóð­kirkja á Íslandi, og skal rík­is­valdið að því leyti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár