Láttu eftir þér að reyna við þrautina frá í gær!
***
Fyrri aukaspurning:
Hún snýst um kvikmynd. Í hvaða bíómynd birtist það tilkomumikla geimfar sem hér að ofan sést á siglingu sinni um svartnætti sólkerfisins?
***
Aðalspurningar:
1. Í hvaða borg starfaði sálfræðingurinn Sigmund Freud mestalla sína tíð?
2. En í hvaða borg dó hann eftir að hafa hrakist í útlegð?
3. Hvað heitir stjórnmálaflokkurinn sem Inga Sæland stýrir?
4. Mohammed Atta var foringi hvaða hóps?
5. Hvað ríki tiheyrir eyjan Ródos?
6. En í hvaða borg er Brandenborgarhliðið?
7. „En af hverju borðar fólkið ekki kökur?“ Þetta á kona ein að hafa sagt þegar henni var sagt að fólkið í landi einu ætti ekki brauð að borða. Raunin er sú að konan sagði þetta alls ekki, heldur lugu óvinir hennar þessu upp á hana. En hver var konan?
8. Í hvaða landi heitir höfuðborgin Budapest?
9. Hver var fyrsta teiknimyndin í fullri lengd sem frumsýnd var í veröldinni? Það var árið 1937.
10. Hvaða atburður skyggði á alla aðra á Íslandi árið 1783?
***
Síðari aukaspurning:
Hún snýst líka um kvikmynd. Úr hvaða kvikmynd er þetta skjáskot, er birtist hér að neðan?

***
Svör við aðalspurningum:
1. Vínarborg.
2. London.
3. Flokkur fólksins.
4. Flugræningjanna 11. september 2001.
5. Grikklandi.
6. Berlín.
7. María Antonetta.
8. Ungverjalandi.
9. Mallhvít og dvergarnir sjö — Disney-mynd.
10. Skaftáreldar. Móðuharðindin fá líka rétt.
***
Svör við aukaspurningum;
Geimfarið kemur við sögu í kvikmyndinni 2001: A Space Odyssey.
Neðri myndin er úr myndinni Með allt á hreinu, sjá hér:

***
Athugasemdir