316. spurningaþraut: Í hvaða á er Skógafoss? Ef þið vitið það er eitt stig komið

316. spurningaþraut: Í hvaða á er Skógafoss? Ef þið vitið það er eitt stig komið

315. spurn­inga­þraut, hér er hún.

***

Auka­spurn­ingar:

Á mynd­inni hér að ofan, hver er lík­lega sá stolt­ara­legi karl sem höggvið hefur hinn sem er að falla?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða tón­list­ar­maður samdi og söng af miklum krafti lagið Declare Independence — eða Lýsið yfir sjálf­stæði!

2.   Í hvaða á er Skóga­foss?

3.   Marie Curie var fyrsta mann­eskjan sem fékk Nóbels­verð­laun tví­vegis, en hún hlaut verð­laun bæði í eðlis- og síðan efna­fræði. Hún gift­ist til Frakk­lands og bjó þar síð­ari hluta ævinnar en hverrar þjóðar var hún í raun?

4.   Hvaða skelfi­lega drep­sótt lagði allt að helm­ing Evr­ópu­búa að velli um miðja fjórt­ándu öld?

5.   Hver er höf­undur Gunnlað­arsögu?

6.   Frá hvaða landi kemur Volvo upp­haf­lega?

7.   Kristrún Mjöll Frosta­dóttir er að fara í fram­boð til Alþingis fyrir ... hvaða flokk?

8.   Hvað þýðir orðið 'Ndrang­heta?

9.   Hún er orðin 81 árs en ennþá á fullu að syngja, enda mála sann­ast að við „þurfum enga aðra hetju“. Hvað heitir hún?

10.   Árið 1977 lögðu tvö lítil ómönnuð geim­för upp í lang­ferð út í óra­víð­áttur geims­ins og hún stendur enn í þeim skiln­ingi að menn eru enn — 44 árum seinna — í sam­bandi við þau og fá öðru boð frá þeim. Þau heita sama nafn­inu en bera núm­erin 1 og 2. Hvað heita þessi litlu geim­för?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er stjórn­mála­mað­ur­inn á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Björk.

2.   Skógá.

3.   Pólsk.

4.   Svarti dauði.

5.   Svava Jak­obs­dóttir.

6.   Svíþjóð.

7.   Sam­fylk­ing­una.

8.   Þetta er ítalska mafía frá Calabriu, en „mafía“ dugar alveg.

9.   Tina Turner.

10.   Voyager 1 og 2.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Skarp­héð­inn. Hann er þarna að höggva Þráin Sig­fús­son úti á ísilagðri Rangá, en nafnið hans eitt dugar.

Á neðri mynd­inni er Ólafur Thors.

***

Og þraut gær­dags­ins, hér finn­iði hana líka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár