314. spurningaþraut: Kafbátur, nasistaforingi, forseti og fallinn múr

Þrautin í gær, mund­uði eftir að gæta að henni?

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Svart fólk var ekki bein­línis hluti af fína fólk­inu á Bret­landi á 19. öld, en sú er þó raunin í sjón­varps­s­eríu einni, eins og sjá má á mynd­inni hér að ofan. Hvað heitir sjón­varps­s­er­ían?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað hét sá for­seti Venes­ú­ela sem lést 2013?

2.   Ása Ólafs­dóttir, Benedikt Bogason, Björg Thoraren­sen, Ing­veldur Ein­ars­dóttir, Karl Axelsson, Ólafur B. Þor­valds­son og Sigurður Tómas Magn­ús­son. Hvaða fólk er þetta? 

3.   Hvaða ár féll Berlín­ar­múr­inn?

4.   Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir tók árið 2017 við gagn­merku starfi í menn­ing­ar­geir­anum íslenska. Hún veitir for­stöðu ... hverju?

5.   Hvað hét nas­ista­for­ing­inn sem Ísra­els­menn rændu í Argent­ínu 1960?

6.   Hvaða fræga hljóm­sveit söng um kaf­bát?

7.   Í grískum goð­sögnum segir frá því að jöt­unn einn hafi kom­ist í svo mikla ónáð guð­anna að hann var lokum hlekkj­aður niður og píndur þannig að örn kropp­aði í lifur hans á hverjum degi. Hvað hét jöt­unn­inn?

8.   Í nor­rænum goð­sögum segir á sama hátt frá Loka sem guð­irnir hlekkja niður og eit­urnaðra lætur eitur drjúpa í and­lit hans. Kona Loka heldur hins vegar skál yfir and­liti hans svo eitrið drjúpi í hana. Hvað heitir hin trygg­lynda kona Loka?

9.   Stundum verður kona Loka hins vegar að losa skál­ina, þegar hún er orðin full. Hvað ger­ist þá?

10.   Hvað hét sú drottn­ing af Kastilíu sem kost­aði — ásamt manni sínum — för Krist­ó­fers Kól­umbusar yfir Atl­ants­hafið?

Síðari auka­spurn­ing:

Af hvaða teg­und er bíll­inn hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Chavez.

2.   Þau eru núver­andi Hæsta­rétt­ar­dóm­arar.

3.   1989.

4.   Hörpu.

5.   Eichmann.

6.   Bítl­arnir.

7.   Pró­meþeifur.

8.   Sigyn.

9.   Þá skelfur Loki svo við að fá eitrið framan í sig að jarð­skjálftar verða.

10.   Ísabella.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skjá­skotið efst er úr sjón­varps­s­er­í­unni Bridgerton.

Bíllinn hvíti er af gerð­inni Citroën.

***

Og hlekkur á þraut­ina síðan í gær!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár