Þið finnið þrautina frá í gær hér.
***
Fyrri aukaspurning:
Hvar voru — eftir því sem best er vitað — aðal bækistöðvar þeirrar menningar sem skóp myndina hér að ofan?
***
Aðalspurningar:
1. Hinrik 8. Englandskóngur átti fleiri eiginkonur en algengt er um evrópska kónga. Hve margar?
2. Hve margar þeirra hétu Katrín?
3. Og fyrst við erum á þessum slóðum: Hvað hét fyrsti kóngurinn (af Stuart-ætt) sem ríkti bæði yfir Englandi og Skotlandi?
4. Hvað heitir heimavöllur karlaliðs fótboltafélagsins Liverpool á Englandi?
5. Enn tíðkast furðu víða að reikna fjarlægðir á sjó í sjómílum en ekki kílómetrum. Hvað er ein sjómíla í kílómetrum? Hér má skeika 200 metrum til eða frá.
6. Árið 1987 hóf göngu sína í amerísku sjónvarpi skemmtiþátturinn The Tracy Ullmann Show. Hann gekk í þrjú ár við þokkalegar vinsældir. Hins vegar er þáttarins nú aðallega minnst vegna þess að þar birtust fyrst stuttir sketsar, sem voru — eftir að The Tracy Ullmann Show hætti — þróaðir áfram og úr varð enn vinsælli skemmtiþáttaröð. Hvað heitir sú?
7. Hver er næst stærsti jökull á Íslandi á eftir Vatnajökli?
8. Hvað hét stjórnmálaflokkurinn sem Vilmundur Gylfason stofnaði árið 1983?
9. Hvað heitir höfuðborg Víetnam?
10. Halla Signý Kristjánsdóttir er þingmaður Framsóknarflokksins í ... hvaða kjördæmi?
***
Seinni aukaspurning:
Hvað nefnist dýrið sem sést á myndinni hér að neðan?

***
Svör við aðalspurningum:
1. Sex.
2. Þrjár — Katrín af Aragón, Katrín Howard, Katrín Parr.
3. Jakob, eða James á ensku.
4. Anfield.
5. Sjómíla er rétt rúmlega einn 1,8 kílómetri svo rétt skal hér talið allt frá 1,6—2.
6. The Simpsons.
7. Langjökull.
8. Bandalag jafnaðarmanna.
9. Hanoi.
10. Norðvesturkjördæmi.
***
Svör við aukaspurningum:
Svarið við þeirri fyrri er Krít. Grikkland er ekki nóg.
Svarið við þeirri síðari er sleggjuháfur. Reyndar ætla ég af mínu snotra hjartalagi að dæma „hákarl“ nægjanlegt.
***
Athugasemdir