310. spurningaþraut: Hér er spurt um erlendar borgir, hverja af annarri

310. spurningaþraut: Hér er spurt um erlendar borgir, hverja af annarri

Hér er þraut gær­dags­ins!

***

Allar spurn­ingar dags­ins snú­ast um erlendar borgir.

Fyrri auka­spurn­ing: Í hvaða borg má finna stytt­una sem sést á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Osló er fjöl­menn­asta borg Noregs. Hver er sú næst­fjöl­menn­asta?

2.   Oscar Niemeyer var arki­tekt sem fékk það drauma­verk­efni að hanna fjölda stór­hýsa og opin­berra bygg­inga í alveg splunku­nýrri borg sem segja má að hafi verið reist upp úr engu á síð­ari hluta 20. aldar. Þar búa nú þrjár millj­ónir manna. Hvaða borg er þetta?

3.   Borg ein hét lengi Serdica eftir þjóð sem bjó þar. Á 14. öld var hins vegar farið að nefna borg­ina eftir kirkju einni sem þar stóð. Nafn kirkj­unnar — og þar með borg­ar­innar — hljómar eins og hún hafi verið nefnd eftir kven­dýr­lingi, en raunin mun þó vera sú að með nafn­inu sé vísað til sjálfrar visk­unnar. Hvað hefur borgin altso heitið síðan á 14. öld?

4.   New York er fjöl­menn­asta borg Banda­ríkj­anna og ég skal trúa ykkur fyrir því að sú næst­stærsta er Los Angeles. En hvaða borg er í þriðja sæti þar í landi?

5.   Dublin heitir höf­uð­borg og lang­fjöl­menn­asta borg Írlands. Hvað heitir sú næst­stærsta þar í landi? Athugið að hér er ein­göngu átt við lýð­veldið Írland, en Norður-Írland telst ekki með.

6.   Hvaða borg hét Byzantium þar til á fjórðu öld eftir Krist?

7.   Hver er fjöl­menn­asta borg Kína?

8.   Catal Huyuk er talin hafa verið ein af elstu borgum heims. Fyrir níu þús­und árum bjuggu þar lík­lega hátt í tíu þús­und manns. Í hvaða núver­andi ríki er Catal Huyuk?

9.   Hvaða tvær evr­ópsku höf­uð­borgir eru næstar hvor annarri? Og já, þið þurfið að nefna báðar. 

10.  Hvað heitir fjöl­menn­asta borgin í Kanada?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Í hvaða borg er þessi mynd tekin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Björgvin.

2.   Brasilia í Brasilíu.

3.   Sofia í Búlgaríu.

4.   Chicago.

5.   Cork.

6.   Mikli­garður, Kon­stant­ínópel, Istanbul.

7.   Sjanghæ.

8.   Tyrk­landi.

9.   Rómaborg og Vatíkanið.

10.   Toronto.

***

Auka­spurn­inga­svör:

Nautið er í New York.

Seinni myndin er tekin við annan enda Karls­brú­ar­innar frægu í Prag.

***

Og hér var svo að finna þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár