308. spurningaþraut: North, Saint, Chicago og Psalm?

308. spurningaþraut: North, Saint, Chicago og Psalm?

Þraut frá í gær, hlekkur.

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Á mynd­inni hér að ofan er stjórn­mála­kona ein. Hvað heitir hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hlaupsár­dag­inn 29. febr­úar 1996 lauk lengsta hern­að­ar­um­sátri um nokkra borg á seinni tímum. Það hafði staðið í þrjú ár, tíu mán­uði, þrjár vikur og þrjá daga. Hvaða borg var þetta?

2.   Árið 1066 var háð fræg orr­usta þar sem heitir Hastings á Englandi. Hvað hét for­ingi þeirra sem sigr­uðu?

3.   Hvað heitir eini Nóbels­verð­launa­hafi Kanada­manna í bók­menntum?

4.   Fyrir hvaða kjör­dæmi situr Páll Magn­ús­son á þingi?

5.   Hver skrif­aði ævi­sögu Halldórs Kiljans Laxness í þremur bindum, sem nefnd­ust Halldór, Kiljan og Laxness?

6.   North, Saint, Chicago og Psalm. Hvaða nöfn eru þetta?

7.   Óðurinn til gleð­innar er hluti af hvaða tón­verki?

8.   Á hvaða reiki­stjörnu geisar gríð­ar­legur stormur sem kall­aður er „Rauði blett­ur­inn“?

9.   Guðlaug Þor­steins­dóttir er geð­læknir en þegar hún var ung að árum var hún lang­fremst íslenskra kvenna í ... hverju?

10.   Í hvaða ríki er borgin Zaragoza?

*** 

Síðari auka­spurn­ing.

Á mynd­inni hér að neðan er stjórn­mála­kona ein. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Sarajevo.

2.   Vil­hjálmur.

3.   Alice Munro.

4.   Suð­ur­kjör­dæmi.

5.   Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son.

6.   Börn Kim Kar­dashian og Kanye West.

7.   Níundu sin­fóníu Beethovens.

8.   Júpíter.

9.   Skák.

10.   Á Spáni.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Sanna Marin, for­sæt­is­ráð­herra Finna.

Á neðri mynd­inni er Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi í Reykja­vík. Það er siður hér að gefa rétt fyrir nöfn Íslend­inga ef þeir nota tvö nöfn, þótt föður-, móður- eða ætt­ar­nafn vanti. Því dugar Sanna Magda­lena í þessu til­viki.

***

Og þrautin frá í gær, hlekkur á hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár