Sjávarútvegsráðherra hefur ekki svarað hvort hann hafi verið í laxveiði í boði Samherja

Útgerðar­félagið Samherji hefur stundað það um árabil að bjóða starfs­mönnum sínum og velunnurum í laxveiði. Eitt slíkt holl hefur Samherji verið með í Rangá í ágúst og hefur Stundin undir höndum ljós­myndir úr einni ferð þangað. Stundin hefur heimildir fyrir að Kristján Þór Júlíusson hafi verið í boðsferð í veiði á vegum Samherja.

Boðsferðir í laxveiði
Boðs­ferðir í lax­veiði Samherji hefur stundað það í gegnum árin, líkt og fjöl­mörg stór­fyr­ir­tæki, að bjóða starfs­mönnum sínum og velunn­urum í lax­veiði. Hér sést fram­kvæmda­stjóri Afíku­út­gerðar Samherja, Aðal­steinn Helgason, með lax í einni slíkri ferð í Rangá árið 2011.

Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og sjávar­útvegs­ráðherra, hefur ekki svarað því hvort hann hafi stundað laxveiði í boði útgerðar­félagsins Samherja. Stundin hefur heimildir fyrir því að Kristján Þór hafi verið í að minnsta kosti einni laxveiði­ferð sem útgerðar­félagið hefur boðið starfs­mönnum sínum og velgjörðar­mönnum til í gegnum árin, en Samherji hefur um langt árabil skipulagt og greitt fyrir slíkar ferðir. Tekið skal fram að umrædd veiðiferð sem blaðið hefur heimildir fyrir átti sér stað áður en Kristján Þór varð sjávar­útvegs­ráðherra 2017. 

„Því miður fyrir okkur, sem eru ástríðu­veiði­menn, sem ekki hafa efni til að veiða í takt við brenn­andi þrá“
Kristján Þór Júl­í­us­son

Blaðið hefur meðal annars undir höndum ljós­myndir úr einni slíkri ferð í Rangá í ágúst árið 2011 þar sem sjómenn og stjórn­endur hjá fyrirtæki Samherja í Afríku, Kötlu Seafood, voru við veiðar og veiddu þeir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár