Auknar varúðarráðstafanir vegna hótunar í garð forsætisráðherra

Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra bár­ust hót­anir þar sem hún var stödd á Seyð­is­firði í dag. Lögregla veit hver hafði hót­an­irnar uppi og er verið að ræða við karl­mann vegna þessa. Örygg­is­gæsla í kringum ráð­herra hefu verið aukin að svo komnu máli.

Auknar varúðarráðstafanir vegna hótunar í garð forsætisráðherra
Katrínu hótað Katrínu Jak­obs­dóttur bár­ust hót­anir í dag sem lög­regla tekur alvar­lega. Mynd: RÚV

Lögreglu bár­ust óstað­festar fregnir af því um hádeg­is­bil í dag að karl­maður hefði haft í frammi hót­anir í garð Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra þar sem hún var stödd á Seyð­is­firði. Lög­reglan eystra veit hver mað­ur­inn er og verið er að ræða við hann þessa stund­ina. Ekki er hægt að úti­loka að hætta sé talin yfir­vof­andi og auknar var­úð­ar­ráð­staf­anir hafa verið gerðar af hálfu lög­reglu.

Frétta­stofa Vísis greindi frá því í hádeg­inu að for­sæt­is­ráð­herra hefðu borist hót­anir þar sem hún var stödd á Seyð­is­firði ásamt þremur ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar til að að sjá skemmdir eftir nátt­úru­ham­far­irnar þar síð­asta föstu­dag og ræða við heima­menn. Katrín var stödd í Ferju­hús­inu á Seyð­is­firði þar sem upp­lýs­inga­mið­stöð er um hádegi. Eftir því sem Stundin kemst næst var Katrínu og aðstoð­ar­konu hennar, Lísu Krist­jáns­dóttur, skipað að yfir­gefa svæðið og voru þær fluttar í bak­her­bergi.  

„Það er verið að ræða núna við þann sem átti að hafa sent þær hót­anir“ 

„Okkur bár­ust óstað­festar fregnir af hót­unum í garð for­sæt­is­ráð­herra og það voru gerðar við­eig­andi ráð­staf­anir. Það er verið að ræða núna við þann sem átti að hafa sent þær hót­anir eða sett þær fram og mál skýr­ast von­andi í kjöl­farið. Ég get nú ekki sagt þér meira en þetta,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, yfir­lög­reglu­þjónn í lög­regl­unni á Aust­ur­landi, í sam­tali við Stundina. 

Spurður hvort ein­hver hætta sé talin yfir­vof­andi svar­aði Kristján Ólafur: „Það er bara í skoðun.“ Engu að síður fer dag­skrá ráð­herra fram áfram eins og áætlun sagði til um að sögn Krist­jáns Ólafs. Spurður hvort ein­hverjar frek­ari var­úð­ar­ráð­staf­anir hafi verið gerðar svar­aði Kristján Ólafur: „Á meðan er verið að finna út úr þessu er svona hafður var­inn á, jú.“

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár