Dómur hefur verið kveðinn upp

„Það sem ég þráði var að glæða per­són­una lífi og gefa henni líf af því að það var tekið af henni,“ segir Þóra Karítas Árna­dóttir um við­fangs­efni bók­ar­innar Blóðberg, sem dæmd var til dauða fyrir blóð­skömm, hór­dóm og mein­særi.

Þegar böð­ull­inn herðir hnút við mjaðma­beinið á mér veit ég að brátt verður öllu lokið. Mér finnst ég þó bíða í óra­langan tíma uppi á kletta­brík­inni áður en mér er hrint fram af.
Fallið tekur fljótt af og ég gríp and­ann á lofti þegar lík­am­inn steyp­ist ofan í kaldan svelg­inn. Ég stingst á bólakaf, berst um og reyni að losa mig, finn þá brodd­staf böð­uls­ins hæfa mig harka­lega. Hann heldur mér niðri svo ég nái ekki and­anum á ný. Lífs­hlaup mitt rennur hjá fyrir hug­skots­sjónum mínum þar til ég hætti smám saman að geta hreyft mig. Kraftur minn þverr og allt breyt­ist, verður mjúkt. Engu lík­ara en að ég yfir­gefi lík­amann og horfi yfir aftöku­stað­inn.

Þetta er sönn saga.
Þórdís Hall­dórs­dóttir var tekin af lífi á Þing­völlum 30. júní árið 1618.
Böðull hrinti henni ofan í Drekk­ing­ar­hyl.
Það voru áhorf­endur.
18 konur voru drepnar í Drekk­ing­ar­hyl á árunum 1618 til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2020

Nútímaafinn hlustar á Fræbbblana og Q4U
MenningJólabókaflóðið 2020

Nútíma­af­inn hlustar á Fræbbblana og Q4U

Gerður Kristný segir að það sé gaman að vera íslenskur rit­höf­undur vegna þess að við sitjum hér að bók­mennta­þjóð. Hún segir að sér hætti til að yrkja mjög dramat­íska ljóða­bálka og að það sé mikil hvíld í því að semja léttar, skemmti­legar en raun­sæjar barna­bækur eins og nýj­ustu bók­ina, Iðunn og afi pönk. Gerður segir að líta eigi á lestur barna eins og hvert annað frí­stunda­starf.
Konan sem elskaði fossinn
MenningJólabókaflóðið 2020

Konan sem elskaði foss­inn

Sigríður Tóm­as­dóttir frá Bratt­holti var mikið nátt­úru­barn og dýra­vinur en átti erfitt með mann­leg sam­skipti. Sigríður er þekkt­ust fyrir bar­áttu sína gegn áformum um að virkja Gullfoss og gekk svo langt að hóta að enda líf sitt með því að kasta sér í foss­inn ef hann fengi ekki að vera í friði. Konan sem elskaði foss­inn er sögu­leg skáld­saga eftir Eyrúnu Inga­dóttur sem skrif­aði fyrst um Siggu frá Bratt­holti fyrir þrjá­tíu árum. Hún segir mik­il­vægt að vekja athygli á bar­áttu­konum fyrri tíma.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár