Saga gerð úr tárum

Bók Elísa­betar Jök­uls­dóttur Apr­ílsól­ar­kuldi spratt fram á nokkrum vikum en hún hafði verið búin að reyna að skrifa hana í tíu ár. Sagan er um föð­ur­missi, ást, geð­veiki og huggun. Elísabet seg­ist vera búin að bera föð­ur­sorg­ina með sér í fjöru­tíu ár en með nýju bók­inni hafi hún hnýtt enda­hnút­inn. Henni hafi verið gefin þessi sorg til að skrifa um hana. Sorgin sé gjöf.

Saga gerð úr tárum
Elísabet segir að hug­myndir streymi upp eins og loft­bólur og eigi það til að flögra burt eins og fuglar eða fiðr­ildi. Hún reyni því að skrifa þær niður um leið og þær birt­ast. Þess vegna á hún 80 glósu­bækur og hún kaupir alltaf þá flott­ustu í búð­inni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þessi saga er um unga stúlku á norð­ur­hveli jarðar sem missir pabba sinn og atburð­ina í kjöl­farið þess. Hún veik­ist á geði því hún getur ekki sýnt nein sorg­ar­við­brögð. Hún verður ást­fangin eftir dauða föð­ur­ins og kynn­ist dópi í leið­inni. Þegar kærast­inn fer frá henni sýnir hún heldur engin sorg­ar­við­brögð, geð­veikin nær tökum á henni því hún hefur fengið áfall ofan í áfall, fyrst misst föð­ur­inn, svo kærast­ann – sjúk­dómur hennar er senni­lega með­fæddur en brýst nú fram – og hver veit hvort það að hún stendur á þrös­k­uldi full­orð­ins­ár­anna hefur sín áhrif, hún vill ekki fara með barnið inn í full­orð­ins­árin því fyrst þarf að næra og hugga barnið, bernsk­una. En hefst nú sagan.

Apr­ílsól­ar­kuldi Elísa­betar Jök­uls­dóttur þeyt­ist af stað, fingur hennar á lykla­borð­inu eins og tíu vilj­ugir hestar. Þannig hefur hún sjálf lýst því hvernig sagan spratt skyndi­lega fram. Eins og gígur hefði opn­ast. Henni héldu engin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2020

Nútímaafinn hlustar á Fræbbblana og Q4U
MenningJólabókaflóðið 2020

Nútíma­af­inn hlustar á Fræbbblana og Q4U

Gerður Kristný segir að það sé gaman að vera íslenskur rit­höf­undur vegna þess að við sitjum hér að bók­mennta­þjóð. Hún segir að sér hætti til að yrkja mjög dramat­íska ljóða­bálka og að það sé mikil hvíld í því að semja léttar, skemmti­legar en raun­sæjar barna­bækur eins og nýj­ustu bók­ina, Iðunn og afi pönk. Gerður segir að líta eigi á lestur barna eins og hvert annað frí­stunda­starf.
Konan sem elskaði fossinn
MenningJólabókaflóðið 2020

Konan sem elskaði foss­inn

Sigríður Tóm­as­dóttir frá Bratt­holti var mikið nátt­úru­barn og dýra­vinur en átti erfitt með mann­leg sam­skipti. Sigríður er þekkt­ust fyrir bar­áttu sína gegn áformum um að virkja Gullfoss og gekk svo langt að hóta að enda líf sitt með því að kasta sér í foss­inn ef hann fengi ekki að vera í friði. Konan sem elskaði foss­inn er sögu­leg skáld­saga eftir Eyrúnu Inga­dóttur sem skrif­aði fyrst um Siggu frá Bratt­holti fyrir þrjá­tíu árum. Hún segir mik­il­vægt að vekja athygli á bar­áttu­konum fyrri tíma.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár