Lætur ekki óttann aftra sér

Þegar Guðjón Reykdal Ósk­ars­son var 15 ára las hann á net­inu að lífslíkur hans væru á enda vegna vöðva­sjúk­dóms­ins Duchenne. Í dag, 29 ára að aldri, vinnur hann að dokt­ors­verk­efni í erfða­far­alds­fræði og bindur vonir við að lækn­ing finn­ist við sjúk­dómnum.

Lætur ekki óttann aftra sér
Guðjón Reykdal Ósk­ars­son Guðjón er einn fárra Íslend­inga sem eru með Duchenne sjúk­dóm­inn. Mynd: Heiða Helgadóttir

Guðjón Reykdal Ósk­ars­son er starfs­maður Íslenskrar erfða­grein­ingar og vinnur að dokt­ors­verk­efni í erfða­far­alds­fræði eftir að hafa lokið meist­ara­námi í lyfja­fræði. Und­an­farið hefur hann birt fræði­greinar um rann­sóknir sínar og sam­starfs­manna sinna og heldur auk þess í frí­tíma sínum úti hlað­varps­þátt­unum Calling Munro þar sem hann og vinir hans spjalla á léttu nót­unum um dæg­ur­mál, heim­speki og vís­indi.

Hann glímir hins vegar við ólækn­andi vöðva­sjúk­dóm sem veldur því að hann notar hjóla­stól og þarfn­ast aðstoðar allan sól­ar­hring­inn. „Ég hef oft talað upp­hátt við sjálfan mig þegar ég er að gef­ast upp,“ segir Guðjón. „Því maður verður oft hræddur og það er erfitt að ein­beita sér ef maður er hræddur. Þá er oft gott að segja þetta: „Ég ætla ekki að láta hræðsl­una við dauð­ann koma í veg fyrir að ég nái því sem ég ætla mér.“ Ég finn að það gefur mér smá kraft að segja þetta upp­hátt.“

Guðjón greind­ist með …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár