Auðlindafyrirtæki á markað í Noregi: Aflandsfélag á Kýpur á nær helming hlutabréfanna

Íslensk laxeldis­fyrirtæki fara á hlutabréfa­markað í Noregi eitt af öðru. Norsk laxeldis­fyrirtæki eiga stærstu hlutina í íslensku félögunum. Hagnaðurinn af skráningu félaganna rennur til norsku. Engin sambærileg lög gilda um eignar­hlut erlendra aðila á íslensku laxeldis­auðlindinni og á fiskveiði­auðlindinni.

Rúmlega 2 milljarða fjárfesting í gegnum Kýpur
Rúmlega 2 millj­arða fjár­fest­ing í gegnum Kýpur Jerzy Malek, pólskur „rað­kaup­sýslu­maður“ eins og hann er kall­aður, er næst stærsti hlut­hafi Arctic Fish á Ísafirði í gegnum fyr­ir­tæki á Kýpur.

Eignarhalds­félag á aflands­svæðinu Kýpur í Miðjarðar­hafinu, sem stundum hefur sagt vera skatta­skjól í gegnum tíðina vegna hagstæðs skatta­umhverfis, á tæplega helmings­hlut í ísfirska laxeldis­fyrirtækinu Arctic Fish á Ísafirði sem til stendur að skrá á hlutabréfa­markað í Noregi á fyrri helmingi næsta árs.

Fyrir­tækið á Kýpur heitir Bremesco Holdings Limited og er í eigu pólska fyrir­tækisins MK Investments Sp.z.o.o í borginni Slupsk í Póllandi. Bremesco setti rúmlega 20 milljónir evra, rúmlega 3,3 milljarða króna, í hluta­bréfin í Arctic Fish á sínum tíma og átti um hríð nær allt félagið. Samkvæmt nýjasta ársreikningi Bremesco Holdings Limited, frá 2018, eru hluta­bréfin í Arctic Fish enn þá bókfærð á þessu kostnaðar­verði.

Árið 2016 kom norski laxeldis­risinn Norway Royal Salmon inn í fyrir­tækið sem eigandi meirihluta hlutafjár. 

Eigandi fyrir­tækisins á Kýpur er pólskur athafna­maður sem heitir Jerzy Malek en hann situr jafnframt í stjórn Arctic Fish. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár