Aðili

Arctic Fish

Greinar

Sagan af slæmum hliðum laxeldis og hvernig hægt er að bæta það
MenningLaxeldi

Sagan af slæmum hliðum lax­eldis og hvernig hægt er að bæta það

Tveir banda­rískir blaða­menn, Douglas Frantz og Catherine Collins, hafa gefið út bók um sjó­kvía­eldi á laxi. Bókin fjallar fyrst og fremst um lax­eldi í Banda­ríkj­unum og Kanada en svo er einnig rætt um eldið í Evrópu, meðal ann­ars í Noregi og á Íslandi. Kjarni bók­ar­innar snýst um að draga upp stóru mynd­ina af lax­eldi í heim­inum, bæði kostum þess og göllum.
Matvælaráðherra lítur slysasleppingar í laxeldi alvarlegum augum
FréttirLaxeldi

Mat­væla­ráð­herra lítur slysa­slepp­ingar í lax­eldi alvar­legum augum

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra segir að nú standi yfir vinna sem gengur út á að end­ur­skoða laga- og reglu­verk með lax­eldi í sjó­kvíum á Íslandi. Hún segir að einnig sé til skoð­unar hvort heppi­legt sé að mik­ill meiri­hluti hluta­bréfa í íslenskum lax­eld­is­fyr­ir­tækjum sé í eigu erlendra aðila. Svandís segir að lax­eldi hafi haft jákvæð áhrif á byggða­þróun á Íslandi en að vanda þurfi til verka.
Sveitarstjórnarmenn og hættan á hagsmunaárekstrum í íslensku laxeldi
Úttekt

Sveit­ar­stjórn­ar­menn og hættan á hags­muna­á­rekstrum í íslensku lax­eldi

Fjögur dæmi eru um það að íslenskir sveit­ar­stjórn­ar­menn hafi verið starf­andi hjá lax­eld­is­fyr­ir­tækjum á Vest­fjörðum og Aust­ur­landi á sama tíma og þeir voru kjörnir full­trúar. Fjögur slík dæmi er hægt að finna frá síð­asta kjör­tíma­bili sveit­ar­stjórna en í dag er aðeins einn starfs­maður lax­eld­is­fyr­ir­tækis starf­andi í sveit­ar­stjórn. Þetta fólk segir að ekki sé rétt­læt­an­legt að skerða atvinnu­mögu­leika fólks í litlum bæjum þar sem ekki sé mikið um fjöl­breytta atvinnu.
11,5 milljarðar fara til Kýpur eftir sölu á auðlindafyrirtækinu
GreiningLaxeldi

11,5 millj­arðar fara til Kýpur eftir sölu á auð­linda­fyr­ir­tæk­inu

Íslenska stór­út­gerðin Síld­ar­vinnslan er orðin stór fjár­festir í lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish á Ísafirði eftir að hafa keypt sig inn fyrir 13,7 millj­arða króna. Hluta­bréfin voru að lang­mestu leyti í eigu fyr­ir­tækis á Kýpur sem pólski fjár­festir­inn Jerzy Malek. Í kjöl­farið er útgerð­ar­fé­lagið Samherji beint og óbeint orðin einn stærsti hags­mun­að­il­inn í íslensku land­eldi og sjó­kvía­eldi á eld­is­laxi.
Starfsmönnum Arctic Fish sagt frá samruna við Arnarlax: „No comment“
FréttirLaxeldi

Starfs­mönnum Arctic Fish sagt frá sam­runa við Arnarlax: „No comment“

Stjórn­endum lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Fish á Ísafirði var sagt frá því fyrir helgi að til standi að sam­eina fyr­ir­tækið og Arnarlax á Bíldudal. Á mánu­dag­inn var greint frá kaupum norsks móð­ur­fé­lags Arnarlax, Salmar, á eig­anda Arctic Fish, Norway Royal Salmon. Talað var um mögu­leik­ann á sam­legð­ar­á­hrifum í rekstri fyr­ir­tækj­anna tveggja og er ljóst að þessi fyr­ir­tæki verða í fram­tíð­inni rekin undir einum hatti.
Einn laxeldisrisi verður til á Vestfjörðum: Eigendur Arnarlax og Arctic Fish sameinast
FréttirLaxeldi

Einn lax­eld­is­risi verður til á Vest­fjörðum: Eigendur Arnarlax og Arctic Fish sam­ein­ast

Norskur eig­andi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax á Bíludal ætlar að kaupa eig­anda Arctic Fish á Ísafirði. Fyrir vikið verða tvö stærstu lax­eld­is­fyr­ir­tæki Íslands í eigu sama norska fyr­ir­tæk­is­ins. Í til­kynn­ingu um sam­run­ann kemur fram að sam­legð­ar­á­hrif í rekstri fyr­ir­tækj­anna náist með þessu. Sam­an­lagt fram­leiða þessi fyr­ir­tæki rúman helm­ing af öllum eld­is­laxi í sjó á Íslandi.
Umhverfisstofnun fundaði með Arctic Fish eftir birtingu myndbandsins en telur ekki tilefni til aðgerða
FréttirLaxeldi

Umhverf­is­stofnun fund­aði með Arctic Fish eftir birt­ingu mynd­bands­ins en telur ekki til­efni til aðgerða

Mynd­bandið sem Veiga Grét­ars­dóttir kajakræð­ari tók af bakt­er­íu­lagi undir sjó­kvíum lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Fish í Dýra­firði gefur ekki til­efni til sér­stakra aðgerða af hálfu Umhverf­is­stofn­unar. Stofn­unin fund­aði með Arctic Fish eftir birt­ingu mynd­bands­ins. Lax­eld­is­fyr­ir­tækið fær hins vegar ekki heim­ild til að setja út meiri eld­is­fisk í kví­arnar að svo stöddu.
Veiga afþakkaði fjórar milljónir: „Ég ætla að standa með náttúrunni“
ViðtalLaxeldi

Veiga afþakk­aði fjórar millj­ónir: „Ég ætla að standa með nátt­úr­unni“

Veiga Grét­ars­dóttir kajakræð­ari varð lands­þekkt þegar hún leið­rétti kyn sitt og réri rang­sælis í kringum Ísland. Hún er einn af hávær­ari gagn­rýnendum lax­eldis á Vest­fjörðum og hefur birt myndir af afskræmdum eld­is­löxum. Í við­tali við Stundina ræðir hún um nýtt mynd­band sem hún tók undir eld­iskvíum í Dýra­firði, bar­áttu sína gegn lax­eld­inu og hvernig það er að vera gagn­rýnin rödd í litlu sam­fé­lagi fyrir vestan.
Myndband af botni Dýrafjarðar sýnir líklega „bakteríumottu“ vegna laxeldis
FréttirLaxeldi

Myndband af botni Dýra­fjarðar sýnir lík­lega „bakt­er­íumottu“ vegna lax­eldis

Myndband sem tekið var á 30 metra dýpi undir sjó­vkvíum í Dýra­firði sýnir það sem lík­ast til er hvítt lag af bakt­er­íum. Einungis er um að ræða annað slíka mynd­bandið sem tekið hefur verið, svo vitað sé, segja sér­fræð­ingar hjá Hafró. Bakt­er­í­urnar eru ekki hættu­legar mönnum en geta haft áhrif á líf­ríki sjávar og sýna lík­lega að of mikið sé af lax­eld­iskvíum í firð­inum og að eldið sé ekki sjálf­bært þar að öllu óbreyttu.
Eigandi Arctic Fish segir 300 til 400 þúsund eldislaxa hafa drepist í Dýrafirði
FréttirLaxeldi

Eigandi Arctic Fish segir 300 til 400 þús­und eld­is­laxa hafa drep­ist í Dýra­firði

Á milli 300 og 400 þús­und eld­is­laxar hafa drep­ist í sjó­kvíum Arctic Fish í Dýra­firði síð­ustu vik­urnar. Eigandi fyr­ir­tæk­is­ins, norska eld­is­fyr­ir­tækið Norway Royal Salmon, sendi frá sér til­kynn­ingu vegna þessa í gær. Til­kynn­ingin kom í kjöl­far þess að myndir voru birtar af dauðu löx­unum. Laxa­dauð­inn mun hafa áhrif á árs­af­komu og slát­ur­tölur fyr­ir­tæk­is­ins.
Ljósmyndir sýna stórfelldan laxadauða hjá Arctic Fish á Þingeyri
FréttirLaxeldi

Ljós­myndir sýna stór­felldan laxa­dauða hjá Arctic Fish á Þingeyri

Myndir sem teknar voru á Þingeyri í gær sýna laxa­dauð­ann sem fyr­ir­tækið Arctic Fish glímir við þar í kjöl­far veð­urs­ins sem geisað hefur á Vest­fjörðum. Fjölmörg kör af mis­mun­andi illa förnum og sund­ur­tættum eld­is­laxi eru tæmd í norskt skip sem vinnur dýra­fóður úr eld­is­lax­inum. Arctic Fish hefur sagt að laxa­dauð­inn í sjó­kvíum fyr­ir­tæk­is­ins kunni að nema 3 pró­sentum en ljóst er að hann er miklu meiri en það.

Mest lesið undanfarið ár