Upplestur: Blóðrauður sjór

Lilja Sigurðar­dóttir rithöfundur les upp úr nýút­kominni glæpasögu sinni, Blóð­rauður sjór.

Bókaupplestri streymt Útsendingin hefst klukkan 12:15 og verður aðgengileg í þessari frétt.

Stundin sendir út menningar­viðburði í samstarfi við Menningar­húsin í Kópavogi. Að þessu sinni mun rithöfundurinn Lilja Sigurðar­dóttir lesa upp úr nýút­kominni skáldsögu sinni, Blóð­rauður sjór, og ræða um hana við  Maríönnu Clöru Lúthers­dóttur, bókmennta­fræðing og leikkonu. 

Streymið hefst í dag kl. 12:15 og er aðgengilegt á Facebook-síðum Stundarinnar og Menningar­húsanna í Kópavogi. Upptaka verður tiltæk á sömu stöðum í kjölfarið. Streymið má nálgast hér.

Eftir­farandi er frétta­tilkynning frá Menningar­húsunum í Kópavogi um viðburðinn:

Lilja Sigurðar­dóttir rithöfundur les upp úr nýút­kominni glæpasögu sinni, Blóð­rauður sjór, og ræðir verkið við Maríönnu Clöru Lúthers­dóttur, bókmennta­fræðing og leikkonu. Viðburðurinn verður sendur út á Facebook-síðu Menningar­húsanna í Kópavogi miðvikudaginn 28.10. kl 12:15.

——————

Um Blóð­rauðan sjó eftir Lilju Sigurðar­dóttur:

Þegar athafna­maðurinn Flosi kemur heim í kvöldmat er allt á rúi og stúi en Guðrún kona hans horfin. Á eldhús­borðinu bíður bréf um að henni hafi verið rænt og ef Flosi greiði ekki himinhátt lausnar­gjald verði hún drepin. Hann má ekki leita til lögreglunnar en eftir króka­leiðum kemst hann í samband við Áróru, sem vinnur við að finna falið fé, og Daníel rannsóknar­lögreglu­mann.

Án þess að nokkuð spyrjist út reyna þau í sameiningu að átta sig á hvað hefur gerst. Getur verið að ránið á Guðrúnu tengist alþjóðlegri glæpa­starfsemi og peninga­þvætti – eða er skýringin ef til vill mun nærtækari?

———————-

Menning á miðvikudögum verður næstu vikurnar helguð umfjöllun um nýút­komnar bækur - fram koma Auður Ava Ólafs­dóttir, Jón Kalman Stef­ánsson, Lilja Sigurðar­dóttir, Ófeigur Sigurðsson, Sigríður Hagalín Björns­dóttir og Vilborg Davíðs­dóttir. Maríanna Clara Lúthers­dóttir ræðir við höfundana sex á Bókasafni Kópavogs.

Þættirnir verða sendir út á miðvikudögum kl. 12:15 í gegnum Facebook-síðu Menningar­húsanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Menning á miðvikudögum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár