Mynd: Shutterstock

Ekkert gler endurunnið á Íslandi í yfir 30 ár þrátt fyrir ítrekuð loforð

Ísland hefur gerst brot­legt við EES samn­ing­inn vegna end­ur­vinnslu á gleri.

Ísland er eina ríki Evrópu sem end­ur­vinnur ekk­ert af sínum gler­úr­gangi. Í þau rúm­lega 30 ár sem safnað hefur verið gleri hér á Íslandi fer ekk­ert af því til end­ur­vinnslu. Fyrstu mark­mið Evr­ópu­sam­bands­ins voru sett árið 2001, en þá var krafa um að ná 15% af öllu gleri í end­ur­vinnslu. Það mark­mið var svo hækkað umtals­vert árið 2012, eða upp í 60%. Ísland hefur aldrei verið nálægt þeim mark­miðum. Mark­miðin hækka svo í 75% fyrir árið 2030.

Gler endurnýtt á Íslandi til að stöðva rottugang

Árið 1989 hóf End­ur­vinnslan hf. starf­semi, það sama ár gat fólk skilað inn gos­flöskum úr gleri og fengið greitt fyrir. Hér áður fyrr tóku gos­fram­leið­endur aftur við flöskum. Þær flöskur voru þvegnar og not­aðar aftur í fram­leiðslu­ferl­inu hjá þeim. Það ferli hætti og urðu því allar gler­um­búðir einnota. Árið 2016 hóf Sorpa loks að setja upp grennd­ar­gáma víðs vegar um höf­uð­borg­ar­svæðið þar sem íbúar þess …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár