Björgólfur sagði ranglega að Samherji hefði ekki notað skattaskjól

Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja, svaraði því neitandi í viðtali spurður hvort félagið hefði notað skatta­skjól í rekstri sínum. Að minnsta kosti þrjú skatta­skjól tengjast rekstri Samherja þó ekkert sýni að lögbrot eða skatta­undanskot hafi átt sér stað í þessum rekstri.

Að minnsta kosti þrjú skattaskjól
Að minnsta kosti þrjú skatta­skjól Að minnsta kosti þrjú skatta­skjól hafa verið notuð beint eða óbeint í rekstri Samherja síð­ast­liðin ár. Máriti­íus, Belís og Marshall-eyjar. Björgólfur Jóhanns­son, annar af for­stjórum félags­ins ásamt Þor­steini Má Bald­vins­syni, svar­aði því neit­andi þegar hann var spurður að því hvort Samherji not­aði skatta­skjól. Mynd: Vísir/Sigurjón

Björgólfur Jóhannsson, annar forstjóri Samherja, sagði ranglega í viðtali á útvarps­þættinum Bítinu mánudaginn 19. október að útgerðar­félagið hefði ekki notast við skatta­skjól í rekstri sínum. Samherji hefur notað skatta­skjólið Máritíus í rekstri sínum í Namibíu, meðal annars, sem og skatta­skjólið Belís til að halda utan um eignar­hald á skipum sem félagið hefur notað í rekstri sínum, auk þess sem Samherji notaði félagið Cape Cod í skatta­skjólinu Marshall-eyjum til að greiða laun sjómanna félagsins í Afríku á árunum 2010 til 2019.

Þá hefur Samherji greitt fleiri hundruð milljónir króna til félags í skatta­skjólinu Dubai, Tundavala Investment, til að fá kvóta í Namibíu. En það félag er ekki í eigu Samherja heldur þeirra namibísku ráðamanna sem fengu greitt frá félaginu til að útvega því kvóta. 

„Er Samherji þá ekki með félög eða dóttur­dótturfélög í skatta­skjóli?“

Tekið skal fram að notkun á skatta­skjólum þarf ekki að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár