Fullorðinsbækur eru bara mjög langar fréttir

Atli Björn Helgason, starfs­maður í Máli og menn­ingu, elskar fantasíu­bók­menntir. Hann berst fyrir því að bæk­urnar um Harry Potter séu aðskildar frá höf­undi þeirra, J.K. Rowling, sökum andúðar hennar í garð trans fólks.

Fullorðinsbækur eru bara mjög langar fréttir
Vill leyfa ímynd­un­ar­afl­inu að njóta sín Atli Björn segir að þungar „full­orð­ins­bók­menntir“ dragi úr sér orku. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ég vinn í Máli og menn­ingu. Mér hefur alltaf þótt vænt um þessa verslun og þetta hús. Ég get þó ekki sagt að ég sé áhuga­maður um klass­ískar bók­menntir, Laxness eða slíkt, í raun­inni ekki. Ég er hins vegar gríð­ar­legur áhuga­maður um fantasíu­bók­menntir. Ég er búinn að sækja þrisvar sinnum um í Nexus! Þeir eru með fer­il­skrána mína í þrí­riti, og kannski ég geti litið á núver­andi vinn­una mína sem starfs­reynslu til að kom­ast þangað.

Ég hef haft áhuga á fantasíu­bók­menntum frá því ég var krakki. Það fer reyndar fyrir brjóstið á mér hvernig litið er á þennan bók­mennta­geira, hann er stimpl­aður sem svo að hann sé fyrir börn en ævi­sögur, stríðs­sögur eða „ó, ég var nærri dáinn úr neyslu“-sögur sem bækur fyrir full­orðna. Það eru fyrir mér bara ofsa­lega langar fréttir, þungar, sem draga úr mér orku ef ég reyni að lesa þær. Að lesa fantasíu­bók­menntir þykir mér hins vegar skemmti­legt, þar fær ímynd­un­ar­aflið að ráða.

Ég elskaði til dæmis Harry Potter-bæk­urnar, og geri í raun enn. Ég hef barist fyrir því að aðskilja höf­und­inn J.K. Rowling frá bók­unum sjálfum, hún hefur engan yfir­ráða­rétt yfir upp­lifun okkar og fantasíum. Ég hins vegar mun ekki kaupa neinn varn­ing sem hún getur hagn­ast á því ég get ekki stutt mann­eskju sem heldur á lofti trans­fó­bískum skoð­unum eins og hún gerir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár