Uppljóstraði um myglu í einkareknum leikskóla og hætti svo störfum

Starfs­maður leik­skóla þurfti sjálf að greiða fyrir myglu­próf. Hún lét af störfum vegna seina­gangs stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins sem rekur leik­skól­ann.

Uppljóstraði um myglu í einkareknum leikskóla og hætti svo störfum
Margrét Sæv­ars­dóttir Barðist við að fá myglu stað­festa og gerði for­eldrum við­vart. Mynd: Heiða Helgadóttir

For­eldrum á einka­rekna heilsu­leik­skól­anum Kór var ekki til­kynnt um það þegar mygla fannst þar fyrr á árinu. Mörg börn voru með mikil ein­kenni, sam­kvæmt for­eldrum sem Stundin ræddi við. Þá fundu starfs­menn einnig fyrir ein­kennum vegna mygl­unnar. Kennari við leik­skól­ann ákvað að taka málið í sínar hendur með því að gera sjálf myglu­próf­anir, á sinn eigin kostnað, þar sem stjórn­endur og eig­endur skól­ans huns­uðu ítrekað beiðni hennar um að skoða málin. Veik­inda­dagar barna og starfs­fólks var óeðli­lega hátt, að sögn leik­skóla­kenn­ara sem starf­aði á heilsu­leik­skól­anum Kór, sem er í eigu Skóla ehf. Skólar ehf. reka fimm leik­skóla víða um land.

Margrét Sæv­ars­dóttir hóf störf hjá Heilsu­leik­skól­anum Kór í des­em­ber 2018. Margrét er mennt­aður kenn­ari og hefur starfað sem slíkur í um 20 ár. Á sínum fyrsta starfs­degi segir Margrét að leik­skóla­stjór­inn hafi farið hörðum orðum um það að almenni­leg veik­indi séu minnst nokkrir dagar, jafn­vel vika. „Hún hélt því …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár