Ný staðreyndavakt SUS um stjórnarskrána segir að Alþingi hafi virt þjóðaratkvæðagreiðsluna

Samband ungra sjálf­stæð­is­manna sakar stuðn­ings­menn nýrrar stjórn­ar­skrár um að byggja bar­áttu sína „að mestu á rang­færslum“ og að kynna hana sem „lausn alls þess sem telj­ast má póli­tískt bit­bein í íslensku sam­fé­lagi“. Á nýrri stað­reynda­vakt SUS er því hafnað að ný stjórn­ar­skrá hafi verið sam­þykkt af þjóð­inni og sagt að Alþingi sé að virða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una.

Ný staðreyndavakt SUS um stjórnarskrána segir að Alþingi hafi virt þjóðaratkvæðagreiðsluna
Forysta ungra sjálf­stæð­is­manna Veronika Steinunn Magn­ús­dóttir, for­maður Heimdallar, og Halla Sigrún Mathiesen, for­maður Sambands ungra Sjálf­stæð­is­manna, segja þjóð­ina ekki hafa sam­þykkt nýja stjórn­ar­skrá.

Ungir Sjálf­stæð­is­menn hafa nú blandað sér í umræð­una um stjórn­ar­skrá Íslands, í kjöl­far þess að stuðn­ings­menn nýrrar stjórn­ar­skrár hafa safnað und­ir­skriftum með her­ferð á sam­fé­lags­miðlum, allt frá Facebook til TikTok undir myllu­merk­inu #hvar.

Í til­kynn­ingu frá for­manni Sambands ungra Sjálf­stæð­is­manna (SUS), eru stuðn­ings­menn stjórn­ar­skrárs­frum­varps stjórn­laga­ráðs, sem birta meðal ann­ars boð­skap sinn á síð­unni nystjorn­ar­skra.is, sak­aðir um „upp­lýs­inga­óreiðu“ og útskýrt að því hafi SUS stofnað stað­reynda­vakt. Í stað­reynda­vakt­inni er því meðal ann­ars hafnað að þjóðin hafi kosið nýju stjórn­ar­skrána og þá er því haldið fram að Alþingi sé að virða nið­ur­stöður hennar, þótt þeim sé ekki fylgt efn­is­lega.

„Með stað­reynda­vakt­inni vill SUS leggja sitt af mörkum til að umræða um stjórn­ar­skrár­mál sé byggð á því sem rétt er og finna má stoð fyrir á vef Alþingis og í öðrum opin­berum gögnum en ekki á ein­staka skoð­unum eða rang­færslum.“

Segja þjóðina ekki hafa samþykkt stjórnarskrána

Meðal þess sem stuðn­ings­menn nýrrar stjórn­ar­skrár hafa byggt kröfur sínar á, er að almenn­ingur hafi sam­þykkt nýju stjórn­ar­skrána í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sem haldin var 20. októ­ber 2012 var nið­ur­staðan að 66,9% vildu „að til­lögur stjórn­laga­ráðs verði lagðar til grund­vallar frum­varpi að nýrri stjórn­ar­skrá“, en 33,1% voru því and­víg.

Á stað­reynda­vakt SUS kemur fram að þjóðin hafi ekki „kosið nýju stjórn­ar­skrána“.

„Nei, kosið var í ráð­gef­andi atkvæða­greiðslu hvort þú vildir að til­lögur stjórn­laga­ráðs yrði lagðar til grund­vallar frum­varpi um nýja stjórn­ar­skrá,“ segir í stað­reynda­vakt­inni. Þá segir í stað­reynda­vakt­inni að það sé rangt að Alþingi hafi ekki virt þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una. „Jú, skýrt var í öllum upp­lýs­ingum fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una að hún væri ein­ungis ráð­gef­andi en ekki laga­lega bind­andi fyrir Alþingi“. 

Saka stuðningsmenn um „upplýsingaóreiðu“

Þá full­yrðir SUS að stuðn­ings­menn stjórn­ar­skrár­innar hafi kynnt nýju stjórn­ar­skrána sem „lausn alls þess sem telj­ast má póli­tískt bit­bein í íslensku sam­fé­lagi“.

Af stjorn­ar­skra.comUngir Sjálf­stæð­is­menn starf­rækja stað­reynda­vakt um stjórn­ar­skrána, þar sem mál­flutn­ingur fylg­is­manna nýrrar stjórn­ar­skrá er gagn­rýndur og vísað á skoð­ana­greinar þess efnis.

„Samtök eins og Stjórn­ar­skrár­fé­lagið og Samtök kvenna um nýja stjórn­ar­skrá berj­ast fyrir upp­töku og lög­fest­ingu til­lagna stjórn­laga­ráðs og byggja þá bar­áttu að mestu á rang­færslum. Sam­fé­lags­miðla­her­ferð var hleypt af stað á dög­unum þar sem þekktir Íslend­ingar bera margar rang­færslur á borð og lög­fest­ing „nýju stjórn­ar­skrár­innar“ kynnt sem lausn alls þess sem telj­ast má póli­tískt bit­bein í íslensku sam­fé­lagi. Er þetta til þess fallið að afvega­leiða umræðu um stjórn­ar­skrár­mál og ýta undir mis­skiln­ing og upp­lýs­inga­óreiðu.“

Veronika Steinunn Magn­ús­dóttir, for­maður Heimdallar, Félags ungra sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, skrif­aði grein í Vísi fyrir helgi þar sem hún kvart­aði undan því að stuðn­ings­menn við nýja stjórn­ar­skrá stjórn­laga­ráðs tækju ekki til­lit til þess að sam­kvæmt núgild­andi stjórn­ar­skrá sé Alþingi með vald yfir stjórn­ar­skránni og kjósa þurfi tvisvar til að sam­þykkja stjórn­ar­skrár­breyt­ingu.

Stuðn­ings­menn nýrrar stjórn­ar­skrá, til dæmis Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, og Viktor Orri Val­garðs­son stjórn­mála­fræð­ingur, sögðu hins vegar að ekki væri efast um það. 

Þá reiknar Veronika sér til að ein­ungis 31% hafi sam­þykkt til­lögur stjórn­laga­ráðs sem grund­völl nýrrar stjórn­ar­skrár, en í reikn­ings­dæm­inu dregur hún frá þá sem ekki tóku þátt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni.

„31% er ekki öll þjóðin,“ skrif­aði hún. „Hin ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla árið 2012 telst ekki með. Það að 66,9% þeirra sem kusu hafi sam­þykkt að hin nýja stjórn­ar­skrá yrði lögð til grund­vallar breyt­inga á stjórn­ar­skrá, telst ekki með. Þessar til­lögur voru í raun sam­þykktar af 31% kosn­inga­bærra manna. Það getur varla rímað við þær yfir­lýs­ingar sem heyrst hafa víða, um að þjóðin hafi lagt blessun sína yfir plaggið.“

Loks segir Samband ungra sjálf­stæð­is­manna að þjóðin geti ekki skrifað texta og hafi því ekki samið stjórn­ar­skrána. „Nei. „Þjóðin“ semur ekki texta.“

Stuðn­ings­fólk nýrrar stjórn­ar­skrárÍ mynd­bandi frá stuðn­ings­hópi fyrir nýja stjórn­ar­skrá eru til­tekin ýmis rök, sem ungir sjálf­stæð­is­menn telja vera rang­færslur.

Stjórnarskrá samin af þjóðkjörnu ráði

Aðdrag­and­inn að mótun nýrrar stjórn­ar­skrár má rekja til fimmta ára­tugs síð­ustu aldar, þegar hávær krafa var um að Íslend­ingar semdu sína eigin stjórn­ar­skrá, enda hafi stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins að mestu verið afrit af dönsku stjórn­ar­skránni. Lagt var til, meðal ann­ars af Fram­sókn­ar­flokki og Sjálf­stæð­is­flokki, að stjórn­ar­skrá yrði samin af sér­stöku stjórn­laga­þingi, enda væru alþing­is­menn sjálfir með hags­muni af stjórn­ar­skrá. 

Rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur sam­þykkti síðar að boða til þjóð­fundar árið 2010, þar sem tæp eitt þús­und manns, valin af handa­hófi, kæmu saman til að leggja drög að vinnu stjórn­laga­þings, sem ætti að taka til starfa árið eftir. Í verka­hring þjóð­fundar var meðal ann­ars að skil­greinda sam­eig­in­leg gildi og hug­sjónir þjóð­ar­innar. Í kjöl­farið var kosið um 25 með­limi stjórn­laga­þings, en um 500 manns buðu sig fram. Eftir að Hæsti­réttur úrskurð­aði að fram­kvæmd kosn­ing­anna hefði ekki farið að lögum, meðal ann­ars vegna þess að ekki voru not­aðir kjör­klefar, ákvað stjórn­ar­meiri­hlut­inn á Alþingi að velja sömu full­trúa í stjórn­laga­ráð, sem myndi semja frum­varp til laga fyrir Alþingis að nýrri stjórn­ar­skrá Íslands. 114.570 manns greiddu gild atkvæði í kosn­ing­unni, eða 48,4% allra á kjör­skrá.

Alþingi hefur boðað til fjög­urra ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslna frá árinu 1908. Þátttaka í þeim hefur verið frá 43,8% til 71,5%. Aðeins einu sinni hefur Alþingi kosið að fylgja ekki nið­ur­stöð­unum efn­is­lega, en það var í kosn­ingum um frum­varp stjórn­laga­ráðs til nýrrar stjórn­ar­skrár árið 2012.

Nú stendur yfir vinna á Alþingi við að upp­færa afmark­aða hluta núgild­andi stjórn­ar­skrár.

Hér má sjá Stað­reynda­vakt um stjórn­ar­skrána, undir rit­stjórn stjórnar Sambands ungra Sjálf­stæð­is­manna. Á síð­unni Ný stjórn­ar­skrá má hins vegar sjá boð­skap þeirra sem styðja nýja stjórn­ar­skrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár