„Go Away, Red Star!“

Fyrir réttri öld var Rauði herinn að knésetja afkomendur hinna stoltu Mongóla í Mið-Asíu. Sumir muna þá atburði betur en aðrir, eins og Illugi Jökulsson leiðir í ljós.

Skarðið í múrnum. Rússneski málarinn Vasily Vereshchagin var að vísu látinn fyrir 16 árum þegar Rauði herinn gerði árás á Bukhara en þessi mynd hans virðist hafa haft forspárgildi.
Skarðið í múr­num. Rúss­neski málar­inn Vasily Vereshchagin var að vísu lát­inn fyrir 16 árum þegar Rauði her­inn gerði árás á Bukhara en þessi mynd hans virð­ist hafa haft for­spár­gildi. Mynd: Wikimedia Commons

Fyrir réttum 100 árum – um mánaða­mótin ágúst/september 1920 – mættust fortíð og nútíð í orrustu við hina fornu borg Bukhara á gömlu Silki­leiðinni í Mið-Asíu.

Bukhara reis upp úr gróður­lítilli mörk nánast í miðri Mið-Asíu og umhverfis borgina var enn gríðar­legur múr að hætti miðalda­borga. Tíu metrar á hæð var hann, og fimm metrar á þykkt. Uppi á borgar­múrunum stóðu stríðs­menn í litklæðum með túrbana undir skraut­legum veifum og gunnfánum með hálfmána íslams blaktandi og sveifluðu bjúgs­verðum sínum og skóku spjót og gerðu hæðnisleg hróp að umsáturs­mönnum, er voru komnir um langan veg til að leggja undir sig borgina.

Flugvélar í fyrsta sinn

Umsáturs­menn voru bara í dauflitum gróf­gerðum hermanna­búningum 20. aldar og hvergi nærri eins tilkomu­miklir og stríðs­mennirnir uppi á múrunum. En þeir höfðu nútíma­vopn, gyrtir byssu­beltum, með hríð­skotariffla, stórar vélbyssur, fall­byssur, nokkra skrið­dreka og brynvarða bíla sem gátu ekið …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár