Nýtt stéttarfélag beitir blekkingum og ósannindum

Í lögum Stétt­ar­fé­lags­ins Kóps, sem stofnað var í byrjun árs, er því rang­lega haldið fram að félagið sé aðili að Starfs­greina­sam­band­inu og Sjó­manna­sam­band­inu. Formaður Starfs­greina­sam­bands­ins segir að verið sé að blekkja fólk. ASÍ varar launa­fólk við félag­inu.

Nýtt stéttarfélag beitir blekkingum og ósannindum
Vara við stétt­ar­fé­lagi sem beitir blekk­ingum Drífa Snædal, for­seti ASÍ, varar launa­fólk við að ganga í stétt­ar­fé­laið Kóp, þar eð það geti með því sér óaf­vit­andi afsalað sér rétt­indum. Björn Snæ­björns­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins, segir for­svars­menn Kóps beita blekk­ingum þar eð full­yrt sé að Kópur sé aðili að Starfs­greina­sam­band­inu. Því fari hins vegar fjarri.

Nýtt stétt­ar­fé­lag, Kópur, fer fram með blekk­ingar í lögum félags­ins. Þar er því haldið fram að stétt­ar­fé­lagið sé aðili að Starfs­greina­sam­bandi Íslands (SGS) og Sjó­manna­sam­bandi Íslands, sem sé aðili að Alþýðu­sam­bandi Íslands (ASÍ). Hvort tveggja er ósatt, Kópur er hvorki aðili að SGS né Sjó­manna­sam­band­inu og ekki heldur aðili að ASÍ.

Forseti Alþýðu­sam­bands Íslands, Drífa Snædal, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem launa­fólk er varað við stétt­ar­fé­lag­inu sem hafi að und­an­förnu aug­lýst starf­semi sína. Virðist aug­lýs­ing­unum einkum beint að Pól­verjum sem starfi hér á landi. ASÍ áréttar að engin tengsl séu milli sam­bands­ins og Kóps og gangi fólk úr öðrum stétt­ar­fé­lögum og í Kóp geti það óaf­vit­andi verið að afsala sér rétt­indum. Lára V. Júl­í­us­dóttir, hæsta­rétt­ar­lög­maður og sér­fræð­ingur í vinnu­mark­aðs­rétti, telur hæpið að Kópur geti starfað sem stétt­ar­fé­lag.

Ósannindi í lögum Kóps

Í lögum Kóps-stétta­fé­lags segir að sem fyrr segir í 1. grein að félagið sé aðili að SGS og Sjó­manna­sam­band­inu. Í sam­tali við Stundina segir Val­mundur Val­munds­son, for­maður Sjó­manna­sam­bands­ins, að þetta séu ósann­indi hvað það félag varðar. Björn Snæ­björns­son, for­maður SGS, segir þetta heldur ekki rétt hvað varðar SGS. „Það hefur ekki sótt um eitt eða neitt hjá okkur. Það hefur hvorki verið haft sam­band við mig eða fram­kvæmda­stjóra, ekki verið óskað eftir inn­göngu í starfs­greina­sam­bandið eða nokkurn skap­aðan hlut. Við höfum ekk­ert af þessu félagi heyrt nema við höfum rek­ist á Facebook-síðu þess. Að þetta félag sé aðili að Starfs­greina­sam­band­inu er bara algjör þvæla og mjög lélegt ef menn eru að setja svona inn til að blekkja fólk.“

„Það hefur ekki sótt um eitt eða neitt hjá okkur.

Kveðið er á um það í lögum um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur að rétt eigi menn á því að stofna stétt­ar­fé­lög í þeim til­gangi að vinna að sam­eig­in­legum hags­muna­málum verka­lýðs­stétt­ar­innar og laun­taka yfir­leitt. Að sama skapi eru svokölluð for­gangs­rétt­ar­á­kvæði í flestum kjara­samn­ingum sem gera það að verkum að félags­menn þess félags sem geri kjara­samn­ing við við­semj­endur hafi for­gang að störfum hjá vinnu­veit­endum.

Efast um að Kópur geti starfaðLára V. Júl­í­us­dóttir telur að Kópur muni vart geta starfað sem stétt­ar­fé­lag.

„Það segir í sjálfu sér ekki mikið í lög­unum um hvað þurfi að vera til staðar í starf­semi stétt­ar­fé­laga annað en að semja um kaup og kjör. Síðan er það for­gangs­rétt­ar­á­kvæðið sem gildir í flestum kjara­samn­ingum, sem gerir það að verkum að það er ekk­ert rými fyrir nema eitt stétt­ar­fé­lag í við­kom­andi starfs­grein á við­kom­andi svæði,“ segir Lára V. Júl­í­us­dóttir.

Sérfræðingur í vinnurétti efast um að Kópur geti starfað

Lára seg­ist ekki sjá fyrir sér hvernig stétt­ar­fé­lagið Kópur eigi að geta starfað í þessu ljósi. Í lögum Kóps kemur fram að félags­að­ild sé opin öllu verka­fólki, og til­tekið hvað undir það falli. Er þar um hefð­bundin verka­manna­störf að ræða, störf sem eru ein­kenn­andi fyrir félags­menn stétt­ar­fé­laga á borð við Eflingu, SGS og Sjó­manna­sam­bandið til að mynda.

„Ég held að það sé mjög erfitt fyrir það, vegna þess að allir laun­þegar í land­inu til­heyra nú þegar ein­hverjum félögum eða sam­tökum. Jafnvel þótt fólk sé ekki skráð sem full­gildir félagar þá telja félögin að allir þeir sem séu að vinna þau störf sem til­tekið stétt­ar­fé­lag semur fyrir til­heyri því í raun,“ segir Lára.

Engin tengsl milli ASÍ og Kóps

Í yfir­lýs­ingu Drífu Snædal, for­seta ASÍ, segir að í kynn­ingum á Kópi-stétt­ar­fé­lagi sé látið að því liggja að félagið hafi aðgang að öllum þeim gæðum og þjón­ustu við félags­menn sem verka­lýðs­fé­lagið hefur byggt upp um ára­tuga skeið, og jafn­vel að félagið sé tengt ASÍ. Þetta sé hins vegar rangt.

Umsókn­ar­eyðu­blaðUmræddu umsókn­ar­eyðu­blaði í Kóp-stétt­ar­fé­lag hefur verið dreift hingað og þangað.

„Það eru engin tengsl milli ASÍ og Kóps og okkur vit­an­lega hefur Kópur ekki gert neina kjara­samn­inga. Kópur er ekki með fræðslu­sjóð til að greiða menntun, er ekki með sjúkra­sjóð fyrir þá sem verða veikir í lengri tíma, á ekki aðild að Bjargi íbúða­fé­lagi sem býður lægri leigu og hús­næð­is­ör­yggi, er ekki aðili að VIRK starfsend­ur­hæf­ingu og á ekki orlofs­hús. Mögu­legir félags­menn í Kópi myndu ekki njóta neinna af þessum rétt­indum né hafa aðgang að lög­fræði­legri og annarri fag­legri aðstoð sem launa­fólki býðst almennt hjá sínum stétt­ar­fé­lögum. ASÍ hvetur til að þessum upp­lýs­ingum sé dreift sem víð­ast og komið í veg fyrir að launa­fólk afsali sér óaf­vit­andi rétt­indum sem verka­lýðs­hreyf­ingin hefur byggt upp um ára­tuga skeið,“ segir í yfir­lýs­ingu Drífu.

Þá hefur Efling stétt­ar­fé­lag einnig haft Kóp-stétt­ar­fé­lag til skoð­unar en án þess að hafa aðhafst neitt frekar hvað varðar mál­efni þess að sinni.

Formaður félags­ins og skráður for­svars­maður er Stanley Kowal. Ekki náð­ist í hann í síma þegar Stundin gerði til­raun til þess að leita eftir skýr­ingum hans á mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár