Verktakar verða fyrir tugmilljóna tjóni vegna þjófnaðar

Bygginga­verktakar verða fyrir ítrekuðu tjóni vegna þjófnaðar á verkfærum og tækjum. Ástandinu er lýst sem faraldri. Lögregla og tolla­yfirvöld segja að um skipulagða glæpa­starfsemi sé að ræða. Sjálf­stæður rafverktaki lenti í því að öllum hans tækjum var stolið í tvígang á hálfu ári.

Verktakar í byggingar­iðnaði sem Stundin hefur rætt við segja stuld á verkfærum, tækjum og jafnvel byggingar­efni svo umfangs­mikinn að tala megi um faraldur í þeim efnum. Innkaupa­stjóri ÞG Verks, eins stærsta verktaka­fyrirtækis landsins, segir að fyrir­tækið verði fyrir alvarlegu innbroti á hverjum verkstað sem það rekur einu sinni til tvisvar á verktíma, svo tjón vegna þess hlaupi á hundruðum þúsunda eða milljónum í hvert sinn. Er það samdóma álit þeirra sem rætt var við að stærstur hluti þjófnaðarins sé skipulagður og verkfæri, tæki og tól séu send úr landi til sölu þar.

Samtök iðnaðarins fullyrða að tjón byggingar­iðnaðarins vegna þessa hlaupi á hundruðum milljóna á undan­förnum árum og vitað sé um einstaka verktaka sem hafi orðið fyrir tugmilljóna króna tjóni í þjófnaðar­hrinu sem reið yfir snemma á þessu ári. Ekkert lát virðist á þjófnaði og skemmdar­verkum.

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu kannast við vanda­málið og að sögn Skúla Jónssonar aðstoðar­yfir­lögreglu­þjóns …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár