Stundaði Samherji arðrán í Namibíu? Mútur og greiðslur í skattaskjól tvöfalt hærri en bókfært tap

Samherji og Morg­un­blaðið full­yrða að „ekk­ert arðán“ hafi átt sér stað í rekstri Samherja í Namibíu. Þetta er nið­ur­staða þess­ara aðila þegar ein­göngu er horft á rekstur dótt­ur­fé­laga Samherja í Namibíu. Þegar horft er rekst­ur­inn í stærra sam­hengi flæk­ist myndin.

Stundaði Samherji arðrán í Namibíu? Mútur og greiðslur í skattaskjól tvöfalt hærri en bókfært tap
Arðrán eða ekki Morg­un­blaðið full­yrðir, og tekur undir með Samherja, að útgerðin hafi ekki stundað arð­rán í Namibíu. Blaðið horfir hins vegar mjög þröngt á starf­semi Samherja og lítur bara á árs­reikn­inga rekstr­ar­fé­lag­anna í Namibíu en ekki á áhrifin af veið­unum innan sam­stæð­unnar sem heildar. Þor­steinn Már Bald­vins­son og Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, sjást hér saman á mynd frá Namibíu.

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji not­aði fjöl­breyttar við­skipta­að­ferðir í rekstri sínum í Namibíu til að greiða pen­inga til ann­arra félaga í sinni eigu utan land­stein­anna. Fyrir vikið varð bók­fært tap á ann­ars arð­bærum rekstri Samherja í Namibíu. Slíkar aðferðir eru þekktar hjá alþjóð­legum stór­fyr­ir­tækjum þar sem skatta­legt hag­ræði getur meðal ann­ars falist í því að rek­star­fé­lög sýni tap­rekstur. Stóra málið er hins vegar hvort fyr­ir­tækja­sam­stæðan sem heild hagn­ast á rekstr­inum eða ekki. 

Samherji not­aði meðal ann­ars eign­ar­halds­fé­lag sem félagið stofn­aði í skatta­skjól­inu Máritíus til að greiða 640 millj­ónir króna af hagn­að­inum af veiðum félags­ins í Namibíu út úr land­inu með skatta­lega hag­kvæmum hætti.

Um var að ræða sér­leyf­is­greiðslur, sem námu 5 pró­sent af tekjum Samherja og sam­starfs­að­ila þeirra af fisk­veið­unum, sem útgerðin fékk fyrir að deila af þekk­ingu sinni í sam­starf­inu við namibíska aðila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár