Sólveig Anna útilokar ekki verkföll ef ríkisstjórnin gerir launþjófnað ekki refsiverðan

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hefur birt opið bréf til rík­is­stjórn­ar­innar með ákalli um að hún standi við lof­orð sem voru gerð með Lífs­kjara­samn­ingnum um að gera launa­þjófnað refsi­verðan.

Sólveig Anna útilokar ekki verkföll ef ríkisstjórnin gerir launþjófnað ekki refsiverðan
Verkföll mögu­leg Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, úti­lokar ekki verk­föll ef Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn verður felldur í haust. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, seg­ist ekki úti­loka verk­föll eða aðrar aðgerðir ef stjórn­völd standa ekki við lof­orð sín um að gera launa­þjófnað refsi­verðan. Hún birti í dag opið bréf þess efnis sem hún sendi á fimm ráðu­neyti. Þar vísar hún í yfir­lýs­ingu stjórn­valda frá 3. apríl 2019 um aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar til stuðn­ings Lífs­kjara­samn­ingum aðila vinnu­mark­að­ar­ins, en þar er lofað að auka heim­ildir til refs­inga fyrir ákveðin kjara­samn­ings­brot.

Í bréf­inu skorar hún á með­limi rík­is­stjórn­ar­innar að standa við gefin lof­orð. „Berist ekki skrif­legar skýr­ingar á því hvernig þið hygg­ist gera það innan skamms áskil ég mér fullan rétt til að gera það sem í mínu valdi stendur sem for­maður Eflingar til að knýja á um að þið standið við orð ykkar. Ég og félagar mínir í stétt verka- og lág­launa­fólks munum ekki sætta okkur við meira af þessu ótrú­lega rugli sem við­geng­ist hefur.“

Stundin hafði sam­band og spurði Sólveigu hvað hún meinti með þessum orðum. Hún sagði að ef stjórn­völd stæðu ekki við gefin lof­orð mundi Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn svo­kall­aði falla, og að þá fái verka­lýðs­fé­lög lands­ins ýmis verk­færi í hend­urnar.

„Allir vita að það kemur núna að end­ur­skoðun Lífs­kjara­samn­ings­ins í haust,“ segir Sólveig. „Þetta hefur verið vitað frá und­ir­ritun samn­ings­ins, þannig að það ætti ekki að koma neinum á óvart að við í Eflingu erum orðin mjög óþreyju­full að sjá enda á þessu atriði vegna þess að þetta er eitt af þeim málum sem við settum á odd­inn í við­ræð­unum. Við munum aldrei sætta okkur við annað en að þetta lof­orð verði upp­fyllt.“

Aðspurð hvort til stæði að efla til verk­falla ef rík­is­stjórnin dregur lapp­irnar ef samn­ing­ur­inn fellur svar­aði Sólveig að allt komi til greina. „Á þessum tíma­punkti úti­loka ég ekki neitt.“

Launakröfur upp á 345 milljónir í fyrra

Í bréf­inu segir hún að þús­undir félags­manna hafi leitað til Eflingar á síð­ustu árum vegna „ógreiddra launa, launa­þjófn­aðar, stulds á des­em­ber- og orlofs­upp­bót og ann­arar glæpa­hegð­unar atvinnu­rek­enda.“

Hún segir að félag sitt hafi gert 700 launa­kröfur fyrir félags­fólk sitt upp á 345 millj­ónir króna. Með­al­upp­hæð kröfu er 492.000 krónur, sem hún segir að sé mun meira en lág­launa­mann­eskja fær fyrir fulla vinnu. „Lögmenn Eflingar tóku svo að sér 370 mál til frek­ari inn­heimtu fyrir hönd með­lima í Eflingu. Þetta eru stað­reyndir úr til­veru verka- og lág­launa­fólks á íslenskum vinnu­mark­aði.“

Bréfið er stílað eins og hefð­bundið kröfu­bréf frá Eflingu, en það var sent á for­sæt­is­ráðu­neytið, atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið, dóms­mála­ráðu­neytið, félags­mála­ráðu­neytið og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, en þau áttu öll aðkomu að Lífs­kjara­samn­ingnum svo­kall­aða.

Launaþjófnaður ekki refsiverður

Í Facebook færslu sem fylgdi bréf­inu spyr Sólveig Anna: „Vissuð þið að það er ekki refsi­vert á Íslandi að stela launum af vinnu­afl­inu?“

Samkvæmt núver­andi reglu­gerð er ekki ólög­legt fyrir vinnu­veit­anda að borga vinnu­fólki sínu ekki full laun. Eina afleið­ing slíkrar hegð­unar er að þurfa að borga van­goldin laun.

Þegar verka­lýðs­fé­lög hafa sótt mál fyrir hönd félags­manna sinna hefur lög­reglan ekki gripið inn í, heldur borið fyrir sig skort á laga­heim­ildum til að ákæra vinnu­veit­enda sem borga ekki laun. Krafa hefur verið uppi hjá verka­lýðs­fé­lögum lands­ins að bæta úr þessu og skapa refsiramma fyrir óheið­ar­lega vinnu­veit­endur.

Krafan kom meðal ann­ars upp í sam­starfs­hópi fé­lags- og barna­mála­ráð­herra sem var skip­aður 14. sept­em­ber 2018. Þar náð­ist ekki ein­hugur um að gera kjara­samn­ings­brot refsi­verð, en krafan var end­ur­ómuð þegar kom að Lífs­kjara­samn­ingnum og stjórn­völd skuld­bundu sig við að þróa hana áfram í sam­ráði við aðila vinnu­mark­að­ar­ins.

Þann 3. apríl birt­ist frétt á síðu stjórn­ar­ráðs Íslands þar sem til­kynntar voru 38 vænt­an­legar aðgerðir stjórn­valda til að stuðla að Lífs­kjara­samn­ingnum. Í kafl­anum sem er merktur Félags­leg und­ir­boð má finna ýmis áform um úrræði til að taka á því órétt­læti sem Sólveig lýsir og stétt­ar­fé­lög hafa barist gegn á þess­ari öld. 22. liður segir: „Heim­ildir til refs­inga verði auknar, í sam­ráði við aðila vinnu­mark­að­ar­ins, ef atvinnu­rek­andi brýtur gegn lág­marks­kjörum launa­manns.“

Þrátt fyrir þessa yfir­lýs­ingu hafa stjórn­völd ekki enn kynnt frek­ari áform þótt ár hafi liðið.

Í sam­tali við Stundina árið 2017 sagði yf­ir­mað­ur man­sals­rann­sókna í Dan­mörku að á Íslandi væri reyndar til laga­heim­ild sem lög­reglan ætti að getað notað. Vísaði hann þá í 253. grein almennra hegn­ing­ar­laga Íslands, sem bannar ein­stak­lingum að nýta sér „bág­indi ann­ars manns, ein­feldni hans, fákunn­áttu“ til að féfletta hann. Hann sagði að Danmörk hefði notað slík lög ítrekað í bar­áttu lands­ins gegn man­sali.

Lesa má bréf Eflingar og færslu Sól­veigar hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár