Vin á hálendinu

Signý Ormars­dóttir þekkir marga skemmtilega staði á Austur­landi og spurð um leyndu perluna nefnir hún Lauga­valladal sem er gróðurvin skammt vestan Jökulsár á Dal.

Í Laugavalladal
Í Lauga­valla­dal Hann er gróð­ur­vin skammt vestan Jökulsár á Dal.

Signý Ormars­dóttir býr á Egils­stöðum og er fróð um skemmtilega staði og göngu­leiðir á Austur­landi. Þegar hún er spurð um leyndu perluna á Austur­landi nefnir hún Lauga­valladal, sem er gróðurvin skammt vestan Jökulsár á Dal.

Ef fólk hefur áhuga á að heimsækja nokkra staði sama daginn, og þar á meðal földu perluna Lauga­valladal þótt auðvelt sé að fara beint þangað, þá er tilvalið að fara merkta gönguleið niður í Magna­helli og áfram í Hafra­hvamma­gljúfur sem þykir vera með stærstu og stórfenglegustu gljúfrum á Íslandi. Hafra­hvamma­gljúfur er um átta kíló­metrar að lengd og um 200 metrar þar sem það er hæst. Þess má geta að hægt er að sjá hluta gljúfursins frá Kára­hnjúkum. Ekki er mælt með að fólk fari ofan í gljúfrið nema með leiðsögn og ekki er hægt að að ganga þar nema fyrri hluta sumars áður en Jökulsá á Dal er komin á yfirfall á Kára­hnjúka­stíflu.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðasumarið 2020

NærmyndFerðasumarið 2020

Gleymdi garður töfra­mannsins i Tungudal

Á Ísafirði er að finna falinn höggmynda­garð ljós­myndarans, lista­mannsins og töfra­mannsins Martinus Simson sem var danskur og settist að á Íslandi árið 1916. Simsons-garður er stað­settur í Tungudal þar sem Simson fékk úthlutaða lóð á þriðja áratugnum en í dag liggur garðurinn í órækt, falinn minnis­varði um merki­legan og listrænan einstakling með ástríðu fyrir skógrækt á Íslandi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár