Þorvaldarmálið: Orð ráðuneytisins og Bjarna benda til ábyrgðar skrifstofustjórans Tómasar

Orð Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra og fjármála­ráðuneytisins benda til að starfs­menn skrif­stofu efnahags­mála hafi tekið ákvörðunina um að leggjast gegn ráðningu Þorvaldar Gylfa­sonar einhliða. Tómas Brynjólfsson, skrif­stofustjóri deildarinnar, vill ekki tjá sig um málið.

Gaf ekki skipunina en lýsir yfir ábyrgð
Gaf ekki skip­un­ina en lýsir yfir ábyrgð Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir í yfir­lýs­ingu að hann beri end­an­lega ábyrgð á því að ráðu­neytið lagð­ist gegn því að Þor­valdur Gylfason hag­fræð­ingur fengi rit­stjóra­starf hjá sam­nor­rænu hag­fræði­tíma­riti.

Orð Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra, og orðalag í svörum fjármála­ráðuneytisins, um ábyrgðina á því að ráðuneytið lagðist gegn ráðningu Þorvaldar Gylfa­sonar sem ritstjóra fræði­tímaritsins Nordic Economic Policy Review benda til þess að ákvörðunin um andstöðuna við Þorvald hafi verið tekin einhliða á skrif­stofu efnahags­mála í ráðuneytinu.

Skrif­stofustjóri þeirrar deildar ráðuneytisins er Tómas Brynjólfsson. Hann er yfirmaður starfs­mannsins, Ólafs Heiðars Helga­sonar, sem sendi tölvu­póstana sem verið hafa til umfjöllunar í fjöl­miðlum þar sem ráðuneytið lýsti sig andvígt því að Þorvaldur yrði ráðinn ritstjóri tíma­ritsins. Ástæðan fyrir því að ráðuneytið taldi Þorvald ekki henta í starfið eru afskipti hans af stjórn­málum á Íslandi. Ólafur Heiðar er sérfræðingur á skrif­stofu efnahags­mála í ráðuneytinu og undir­maður Tómasar. 

 „Af þessu tilefni minni ég á að starfs­menn ráðuneyta starfa í umboði og á ábyrgð ráðherra. “

Vefmiðillinn Kjarninn greindi fyrst fjölmiðla frá málinu fyrr í vikunni og hefur það vakið mikla athygli. 

Bjarni lýsir yfir endanlegri ábyrgð

Bjarni Benediktsson tjáði sig um málið í fyrsta sinn fyrr í dag með langri færslu á Facebook og lýsti hann yfir endanlegri pólitískri ábyrgð sinni á málinu.

Bjarni segir meðal annars í yfir­lýsingu sinni: „Af þessu tilefni minni ég á að starfs­menn ráðuneyta starfa í umboði og á ábyrgð ráðherra. Þótt ekki séu öll samskipti borin undir mig ber ég á þeim ábyrgð og í þessu tilviki endur­speglast vilji minn um að tilnefna hvorki né samþykkja Þorvald Gylfason til þessara starfa.“

„Þetta er rétt - hann nýtur ekki stuðnings okkar.“

Orðalag Bjarna um að „öll samskipti“ séu „ekki“ borin undir hann bendir til þess að hann hafi ekki vitað um skoðana­skiptin um Þorvald Gylfason áður en þau fóru fram og að hann  hafi ekki gefið skipun um þau, jafnvel þó hann sé sammála því að Þorvaldur hafi ekki hentað í starfið vegna stjórnmála­skoðana hans. 

Tómas vill ekki tjá sig

Vill ekki tjá sigTómas Brynj­ólfs­son, yfir­maður starfs­manns­ins sem sendi tölvu­s­póstana, vill ekki tjá sig um málið við Stundina.

Í tölvu­póstunum sem liggja fyrir í málinu kemur skýrt fram að Ólafur Heiðar er ekki bara að lýsa sinni eigin afstöðu þegar andstöðu við val Þorvaldar sem ritstjóra er lýst. Enda hefur Ólafur Heiðar ekki umboð til slíks þar sem hann er ekki yfirmaður á þeirri deild þar sem hann starfar í ráðuneytinu og undir­maður í ráðuneyti tekur vitanlega ekki slíkar ákvarðanir einn síns liðs án þess að ráðfæra sig við yfirmann eða yfirmenn.

Ólafur Heiðar segir hins vegar ítrekað „við“ og „okkar“ þegar hann er að lýsa afstöðu fjármála­ráðuneytisins til Þorvaldar og af hverju hann sé ekki hæfur til að gegna starfinu að mati ráðuneytisins. „Þetta er rétt - hann nýtur ekki stuðnings okkar,“ segir hann meðal annars í einum tölvu­póstinum. 

Þegar Ólafur Heiðar sagði „okkar“ og „við“ í tölvu­póstunum, til hverra var hann þá að vísa? 

Ólafur Heiðar hefur neitað að ræða málið við fjölmiðla. Í viðtali við Frétta­blaðið í gær sagði hann: „Ég er háður þagnar­skyldu um allt sem að ég geri í rauninni og má ekki ræða það við fjölmiðla.“

Tómas Brynjólfsson, skrif­stofustjóri efnahags­mála í fjármálaráðueytinu og yfirmaður Ólafs Heiðar, vill heldur ekki tjá sig um málið þegar Stundin leitar eftir því. „Þú verður bara að hringja í hana Elvu [Björk Sverris­dóttur upplýsinga­fulltrúa ráðuneytisins].“ Aðspurður um hvort hann vilji ekki tjá sig um málið segir Tómas að það sé best að upplýsinga­fulltrúinn geri það. 

Elva Björk Sverris­dóttir segir í samtali við Stundina að hún geti ekki svarað því í síma með hvaða hætti ákvarðana­takan í málinu fór fram og hvort Tómas Brynjólfsson hafi tekið ákvörðunina um að leggjast gegn ráðningu Þorvaldar án þess að hafa ráðfært sig um það við Bjarna Benediktsson eða aðra yfirmenn sína í ráðuneytinu. „Ráðurneytið stendur við það sem það hefur sagt um þetta mál,“ segir Elva og vísar í fyrri yfir­lýsingar þess í fjöl­miðlum. 

Of virkur í stjórn­málumSkýr­ingar starfs­manna ráðu­neyt­is­ins í tölvu­póst­unum voru þær að Þor­valdur Gylfason væri of virkur í stjórn­málum á Íslandi til að stýra hag­fræði­tíma­rit­inu.

Yfirstjórnin kom ekki að málinu

Eins og Kjarninn greindi frá þá kom það fram í svörum frá fjármála­ráðuneytinu um málið að ákvörðunin um að leggjast gegn því að Þorvaldur fengi starfið var „ekki borin undir ráð­herra né aðra á skrif­stofu yfir­stjórnar ráðu­neyt­is­ins.“

Þetta svar er alveg skýrt um að ákvörðunin um að leggjast gegn því að Þorvaldur fengi ritstjóra­starfið var ekki borin undir Bjarna Benediktsson, aðstoðar­mann hans Svanhildi Hólm eða ráðuneytis­stjórann, Guðmund Árnason, áður en undir­maðurinn í ráðuneytinu skrifaði tölvu­póstana um Þorvald. 

Orð Bjarna sjálfs um að „öll samskipti“ séu ekki borin undir hann þó svo að hann sé endanlega ábyrgur fyrir því sem ráðuneytið gerir renna svo frekari stoðum undir að tölvupóst­samskiptin um Þorvald hafi ekki verið að undirlagi Bjarna eða vegna skipunar frá honum. 

Bjarni  lýsir hins vegar yfir pólitískri ábyrgð sinni sem ráðherra og yfirmaður þeirra sem báru ábyrgð á tölvu­póstunum um Þorvald. Svo vill til að sú afstaða á  Þorvaldi sem fram kom í tölvu­póstunum frá Ólafi Heiðari er samhljóða því mati Bjarna á honum sem hann lýsir í yfirýsingu sinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár