Bergþór spyr hvort segja eigi börnum að þau séu líklegir kynferðisbrotamenn

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, varar við fræðslu um kynferð­is­legt ofbeldi á lægri skóla­stigum. Börn eigi að fá að vera börn. „Þarf að gefa í skyn við leik­skólabörn að þau séu líkleg til að verða fyrir ofbeldi og beita aðra ofbeldi?“ spyr hann.

Bergþór Ólason
Bergþór Ólason Þing­mað­ur­inn segir fræðslu um umhverf­is­mál valda börnum lofts­lagskvíða. Mynd: Miðflokkurinn

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, varar við því að börn í leikskóla og grunn­skóla verði frædd um kynferðislegt ofbeldi. Segir hann börn kljást við loftslags­kvíða eftir fræðslu um umhverfismál og að fræðsla um ógnir heimsins sé ekki börnum til góða.

Þetta kom fram í máli hans á Alþingi í dag. Rætt var um tillögu forsætis­ráðherra þess efnis að komið verði á skipulögðum forvörnum gegn kynferðis­legu og kynbundnu ofbeldi og áreitni. Forvarnirnar verða samþættar kennslu og skóla­starfi á öllum skóla­stigum, frá leikskóla og upp úr.

„Samkvæmt tillög­unni á að heyja baráttuna gegn ofbeldinu á öllum skóla­stigum og byrja í leik­skólum,“ sagði Bergþór. „Hér finnst mér rétt að staldra við. Auðvitað á að berjast gegn ofbeldi. En við megum ekki láta gæði málstaðarins, gæði barátt­unnar, taka öll völd. Á að fara með þessa baráttu inn á leik­skólana? Á að fara með hana inn í yngstu bekki grunn­skólans? Auðvitað verður sagt að hér sé átt við fræðslu en ekki innrætingu og hún verði miðuð við þroska hvers og eins og að hún verði í höndum fagmenntaðs starfs­fólks. Ég ætla ekki að þykjast vera sérfróður hér. En ég vil engu að síður segja að börn eiga að fá að vera börn.“

Bergþór sagði að full­orðnir þyrftu að fara sér hægt við að koma eigin áhyggju­efnum inn í huga barna. „Hvernig hefur þetta verið í umhverfis­málum undan­farin ár?“ bætti hann við. „Þar hefur verið talið nauðsynlegt að fræða börn allt frá leik­skólaaldri um umhverfismál. Þau eru látin flokka og endurnýta þar sem auðlindir séu að ganga til þurrðar og allt sé að fyllast af drasli. Mannkynið gangi svo illa um jörðina. Við leik­skólann blaktir grænfáninn en sá íslenski er kannski sjaldséðari. Svo berast fréttir af því að börn geti varla mætt í skólann lengur af áhyggjum af umhverfinu. Víða hvetja kennarar krakkana til að skrópa í tíma til að standa með skilti fyrir framan sjónvarps­myndavélar. Margir eiga víst erfitt með svefn vegna loftslags­kvíða. Herra forseti, er víst að öll þessi fræðsla til barna um ógnir heimsins sé af hinu góða?“

„Þarf að segja grunn­skólabörnum að þau séu sjálf eða skóla­félagarnir líklegir kynferðis­brotamenn?“

Bergþór sagði hina áhyggju­lausu tilveru barna standa nógu stutt yfir. „Þarf endilega að leggja ábyrgðina af þverrandi auðlindum og yfir­fullum sorp­haugum á herðar leik­skólabarna? Þarf að gefa í skyn við leik­skólabörn að þau séu líkleg til að verða fyrir ofbeldi og beita aðra ofbeldi? Þarf að segja grunn­skólabörnum að þau séu sjálf eða skóla­félagarnir líklegir kynferðis­brotamenn?“

Vísaði í Nýja testamentið

Bergþór tengdi málið við hugmyndir um lækkun kosninga­aldurs niður í 16 ár. „Ég geri að sjálfsögðu ráð fyrir því að það sé tilviljun að á sama tíma og sagt er frá því að skólabörn séu mörg orðin nær frávita af hræðslu í umhverfis­málum verður ákafari krafan úr ýmsum áttum fyrir því að kosninga­aldurinn verði lækkaður,“ sagði hann.

Þá sagði hann sama fólk vakandi á verðinum yfir að skólabörn fái ekki gefins Nýja testamentið. „Sem er þó ákaflega góð og holl lesning fyrir fólk á öllum aldri og þar er einn boðskapur áberandi og hljómar þannig, með leyfi forseta: „Verið ekki áhyggju­fullir“.“

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, sagði margt skrítið í ræðu Bergþórs. „Það þarf að útskýra með orðum á barns­aldri hvað er eðlileg hegðun og ekki eðlileg hegðun,“ sagði hann. „Og mörk fólks eru oft mjög óljós, sér í lagi ef það er ekki talað um það. Þess vegna er mikilvægt að fræða börn sér í lagi og fólk almennt um það hvar þú setur mörk. Að segja fólki að það eigi sér líkama og þurfi ekki að gefa skýringar á því hvort það vilji þetta eða hitt með sinn líkama. Það er mjög mikil­vægur boðskapur sem hefur skort í menningu okkar í gegnum tíðina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár