Spurningaþraut 3: Hver er þetta? og fleiri ráðgátur

Þetta er þriðja spurninga­þrautin sem ég bý til í morguns­árið að gamni mínu, hinar tvær fyrri eru hér og svo hér. Og svo eru nýjar spurningar hérna.

Spurningarnar eru alltaf tíu og svörin er að finna undir myndinni af skipinu hér að neðan.

Auka­spurningar eru tvær: Hver er konan á myndinni hér að ofan, og hvaða skip er það sem siglir svo glatt?

1.  Hvað hét fyrsti forseti Banda­ríkjanna?

2.  Hver er listgrein Krist­bjargar Kjeld?

3.  Hver skrifaði bókina Gunnlaðar saga?

4.  Tónlistar­maðurinn Nayvadius DeMun Wilburn kallar sig Future; hver er hans tónlist?

5.  Margrét 2. Dana­drottning hélt nýlega upp á stór­afmæli sitt. Hún er, eins og allir vita, kunnust fyrir umfangs­miklar reykingar sínar. En fyrir hvað var Margrét 1. drottning þekktust, en hún var uppi um 1400?

6.  Þjóð­leikhúsið hélt nýlega upp á 70 ára afmæli sitt. Hver teiknaði það hús?

7.  Í hvaða landi heitir höfuð­borgin Bogotá?

8.  Tveir íslenskir forsætis­ráðherrar hafa borið nafnið Bjarni Benediktsson. Hver er skyld­leiki þeirra?

9.  Hvaða kommúnista­leiðtogi var hrakinn frá Sovét­ríkjunum árið 1929?

10.  Hvað þýðir orðið krínólína nákvæmlega?

1.  George Washington

2.  Hún er leikkona

3.  Svava Jakobs­dóttir

4.  Rapp

5.  Fyrir að koma á fót Kalmar­sambandi, sameiginlegu ríki Norður­landanna

6.  Guðjón Samúelsson

7.  Kólumbíu

8.  Bjarni eldri var afabróðir Bjarna yngra

9.  Trotskí

10.  Grind eða annar útbúnaður til að þenja út pils kvenna, sem var í tísku á 19. öld og örlítið fram á þá 20. 

Svar við auka­spurningum: Á efstu myndinni er Marie Salomea Skłodowska, pólsk vísinda­kona sem fluttist til Frakk­lands og fékk þá eftir­nafnið Curie með eigin­manni sínum. Skipið er Titanic.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár