Hér eru tíu spurningar um hvaðeina milli himins og jarðar. Svörin eru að finna fyrir neðan myndina af konunni. Aukaspurningin hljóðar raunar svo: Hver er hún?
1. Hvannadalshnjúkur í Öræfajökli er hæsti staður á Íslandi. En hvaða staður er hæstur utan Öræfajökuls?
2. Sú bíómynd, sem rakað hefur saman mestu fé, var frumsýnd í fyrra. Henni leikstýrðu tveir bandarískir bræður. Hvað heitir þessi mynd?
3. Hvað heitir höfuðborgin í Portúgal?
4. Þegar fyrst var farið að rækta banana voru þeir nokkuð ólíkir bönunum nútímans, sem hafa verið mjög „kynbættir“. Þetta gerðist á einni af stærstu eyjum heimsins, hún er nærri átta sinnum stærri en Ísland. Hvað heitir hún?
5. Fyrir fáeinum komst í fréttir kornung stúlka frá Pakistan sem barðist fyrir réttindum stúlkna til menntunar og hafði orðið fyrir árás í heimalandi sínu vegna þess. Hún fékk friðarverðlaun Nóbels fyrir baráttu sína. Hvað heitir hún? - fornafnið dugar.
6. Hvað heitir eldri sonur Margrétar 2. Danadrottningar, krónprinsinn í Danmörku?
7. Ronja ræningjadóttir er ein vinsælasta persóna Astrid Lindgren. Hvað heitir ræninginn faðir hennar?
8. Hvað nefnist þjóðartrú Japana?
9. Hvaða embætti á Íslandi á sér lengsta órofna sögu, eða síðan 1760?
10. George R. R. Martin er höfundur bókanna sem sjónvarpsþættirnir Krúnuleikarnir (Game of Thrones) voru gerðir eftir. Hvað þýða R-in tvö í nafni hans?

Svörin eru:
1. Bárðarbunga
2. Avengers: Endgame
3. Lissabon
4. Nýja Gínea
5. Malala (og Yousafzai að eftirnafni)
6. Friðrik
7. Matthías
8. Sjintó
9. Embætti landlæknis
10. Raymond Richard
Og svarið við aukaspurningunni: Hver er á myndinni? er Billie Eilish söngkona
Spurningakeppni frá því í gær er svo hérna.
Sú næsta er hins vegar hvorki meira né minna en hér.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir