Svona er kjarasamningur hjúkrunarfræðinga: Minni taxtahækkun en hjá þingmönnum

Hjúkrunar­fræðingar hafa verið beðnir að ræða ekki efni kjara­samnings Félags íslenskra hjúkrunar­fræðinga við fjármála­ráðuneytið. Taxtalaun hjúkrunar­fræðinga hækka minna á fjögurra ára tímabili en nýlega hækkuð laun þingmanna. Orlof nýrra hjúkrunar­fræðinga er hins vegar lengt og vaktaálag nætur- og hátíðar­vinnu verður hækkað. Sumir óttast að lækka í launum vegna samningsins.

Frá Landspítalanum
Frá Land­spít­al­anum Hjúkr­un­ar­fræð­ingar fá hærri greiðslur fyrir vakta­vinnu og taxta­launa­hækkun upp á 68 þús­und krónur yfir fjög­urra ára tíma­bil, sam­kvæmt nýjum kjara­samn­ingi sem er í sam­þykkt­ar­ferli. Myndin teng­ist efni grein­ar­innar ekki beint. Mynd: Tómas Guðbjartsson

Taxta­launahækkun hjúkrunar­fræðinga á tæpum fjórum árum verður minni en launa­hækkun þingmanna sem uppvíst varð um nýlega, samkvæmt nýundirrituðum kjara­samningi fjármála­ráðuneytisins við hjúkrunar­fræðinga. Það segir hins vegar ekki alla söguna.

Hjúkrunar­fræðingar hafa verið beðnir um að halda trúnað um samninginn og ræða hann ekki opinber­lega, á meðan hann er í samþykktar- og kynningar­ferli. 

Stundin hefur hins vegar kjara­samnings­drögin undir höndum og greinir hér frá efni hans. Samningurinn hefur ekki verið samþykktur af hjúkrunar­fræðingum, en Félag íslenskra hjúkrunar­fræðinga kynnti hann félags­mönnum í fyrradag, sem þurfa að samþykkja hann eða hafna honum fyrir mánaðarlok. Atkvæða­greiðslan hefst á miðvikudag.

Hjúkrunar­fræðingar hafa nú verið samnings­lausir í rúmt ár. Umræddur kjara­samningur gildir um tímabilið frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2023.

Hafa ber í huga að samningarnir eru flóknir,  og í þeim er kveðið á um ýmsar viðbætur og skerðingar, svo sem hækkun vakta­álags um nætur og jól, og svo minnkaðan vinnutíma með afnámi skipulagðra kaffihléa. Þannig eru kjara­samningarnir illa samanburðar­hæfir við kjör margra annarra stétta, svo sem þingmanna, og áhrif samninganna misjöfn eftir einstaklingum.

Taxtalaun hækka um 68 þúsund krónur

Í kjara­samningnum, sem gildir yfir fjögurra ára tímabil, er hjúkrunar­fræðingum veitt taxta­launahækkun sem nemur 68 þúsund krónur í heildina, í árlegum skrefum.

Samhliða þessu verða álagslaun fyrir nætur­vinnu og vaktir á stór­hátíðar­dögum, aðfangadags­kvöld og nýársnótt, hækkuð töluvert, eða um 10 til 30 prósentu­stig.

Undan­farið hefur hins vegar verið í gildi sérstakur vaktaálags­auki. Fréttir voru af honum um síðustu mánaðarmót, þegar laun hjúkrunar­fræðinga lækkuðu um allt að tugi þúsunda króna, vegna þess að vaktaálags­aukinn hafði runnið út. Úrræðinu hefur verið beitt frá árinu 2017 til þess að „auka hvata hjúkrunar­fræðinga til þess að sinna vinnu­skyldu sinni utan dagvinnu­marka“.

„Þetta er engin kjarabót fyrir okkur sem erum í dagvinnu.“

Hækkun vakta­álags gagnast hins vegar lítið hjúkrunar­fræðingum sem vinna dagvinnu. Hjúkrunar­fræðingur sem Stundin ræddi við sagði dagvinnu­fólk vera óánægt með samninginn, þótt hann gæti reynst ágætur þeim sem vinna kvöld- og nætur­vinnu: „Þetta er engin kjarabót fyrir okkur sem erum í dagvinnu. Stærsta kjara­bótin er fyrir þær sem eru á þrískiptum vöktum; dag-, kvöld- og nætur­vinnu. Það eru ekkert rosalega margir í þeim pakka. Stór hluti hjúkrunar­fræðinga eru einstæðar mæður. Það geta ekki allir unnið á næturnar og á kvöldin. Þetta er svolítið andfemínískur samningur, að því leyti.“

Í samningnum er opnað á styttingu vinnu­vikunnar niður í 36 tíma, en með því að afnema greiðslur fyrir kaffitíma. Í eldri samningi hjúkrunar­fræðinga er ákvæði um fastar yfirvinnu­greiðslur vegna kaffitíma sem fólk nái fyrir­sjáanlega ekki að nýta.

Af Land­spít­al­anumStór hluti hjúkr­un­ar­fræð­inga vinnur ekki á kvöldin eða um nætur og nýtur ekki hækk­unar vakta­á­lags­greiðslna.

Óttast að lækka í launum

Sumir óttast að lækka í launum vegna nýja kjara­samningsins. Það getur tæknilega séð gerst á næsta ári þegar yfirvinnu­greiðslur vegna ótekinna kaffitíma eru fjar­lægðar, jafnvel þótt taxta­hækkun upp á 35 þúsund krónur á mánuði hafi átt sér stað.

„Við eigum enga kaffitíma, þetta er kannski eina yfir­vinnan sem fólk fær,“ segir hjúkrunar­fræðingurinn. „Það getur verið 40 til 50 þúsund á mánuði. Við styttingu vinnu­vikunnar er þetta tekið út. Það er loforð um að enginn lækki í launum, en það er ekki kjara­samnings­bundið.“

Ánægja ríkir um ákveðin ákvæði samningsins, til dæmis að nýútskrifaðir hjúkrunar­fræðingar fái strax í upphafi 30 orlofs­daga á ári, í stað 24 orlofs­daga. Þetta gagnast þó ekki þeim sem hafa starfað lengi.

Þá verður innleitt að hjúkrunar­fræðingar fá tíu daga í endur­menntun á hverju ári, en áður hafði starfs­mönnum verið heimilt að biðja um námsleyfi, án fullvissu um samþykki. 

„Það sem mér finnst vera best við þennan samning er að það er búið að tryggja okkur 10 daga endur­menntun. Við þurfum að uppfæra þekkinguna okkar. Að fara á námskeið og ráðstefnur er nauðsyn­legur hluti af starfinu,“ segir hjúkrunar­fræðingurinn.

„Það sem mér finnst vera best við þennan samning er að það er búið að tryggja okkur 10 daga endur­menntun.“

Eftir að allar taxta­hækkanir hafa verið teknar inn í myndina verða byrjunar­laun hjúkrunar­fræðinga 410 þúsund krónur á mánuði árið 2022.

Annar hjúkrunar­fræðingur sem Stundin ræddi við í gær sagði marga vera „í sjokki“ yfir samningunum. „Þetta eru nánast engar launa­hækkanir, fólk átti von á talsvert meiru og ég heyri að mörgum finnst þetta móðgandi. Þetta eru hrikaleg vonbrigði, ég get ekki orðað þetta neitt öðruvísi.“

Hjúkrunarfræðingar beðnir að ræða ekki samninginn

Samkvæmt heimildum Stundarinnar fór formaður félagsins, Guðbjörg Páls­dóttir, sérstak­lega fram á það við félags­menn að ræða ekki samninginn opinber­lega, á kynningar­fundi sem haldinn var í fyrradag og var streymt í gegnum fjarfundar­búnað.

Umræðum sem innifela upplýsingar um samninginn hefur verið eytt af Facebook-síðunni Bakland hjúkrunar­fræðinga. Þar hefur þeim tilmælum verið beint að hjúkrunar­fræðingum að beina spurningum sínum að tölvu­póstfanginu kjarasamningar@hjukrun.is og nálagst kynningar­efni á Mínum síðum á hjukrun.is, sem er á vegum Félags íslenskra hjúkrunar­fræðinga.

„Spurningum og frekari umræðum um samninginn verður ekki svarað á samfélags­miðlum,“ segir í innleggi stjórn­anda á Baklandi hjúkrunar­fræðinga.

„Skrítið,“ segir hjúkrunar­fræðingur í samtali við Stundina. „Það er verið að loka heilum deildum vegna þess að það vantar hjúkrunar­fræðinga. Þetta varðar alveg almenning.“

Markmið að bæta heilsu starfsmanna

Yfirlýst markmið samninganna, sem tilgreind eru í viðauka, eru meðal annars að stytta vinnu­vikuna, draga úr þörf og hvata til yfirvinnu, bæta samþættingu starfs og einkalífs, gera vakta­vinnu eftirsóknar­verðari, bæta heilsu starfs­fólks og að vinnutími og að laun taki betur mið af vakta­byrði og „verðmæti staðins tíma“.

Gerðar verða mælingar til að fylgja eftir mark­miðunum. „Á samnings­tímanum verða framkvæmdar reglulegar mælingar til að leggja mat á áhrif kerfis­breytinganna á starfs­fólk og starfsemi stofnana. Mælingarnar skulu vera mánaðarlegar eða reglu­bundnar á 3-12 mánaða fresti, ýmist gerðar með upplýsingum úr launa- eða mannauðs­kerfum, með spurninga­könnunum eða öðrum hætti,“ segir í viðauka samningsins.

Kaffihlé hætt til að stytta vinnutíma

Ákvæði kjara­samnings sem kveða á um kaffihlé verða fjarlægð og það sett í hendurnar hverrar stofnunar fyrir sig að semja um útfærslu, sem geti annað hvort verið eins og áður eða kveðið á um vinnu­tíma­styttingu með því að fjarlægja kaffihlé.

Þannig verður unnt að stytta vinnutíma niður í 36 tíma á viku, með því að stytta hlé. „En við þurfum að sleppa kaffi­tímunum okkar á móti. Þannig að þetta er ekki hrein stytting á vinnutíma,“ sagði hjúkrunar­fræðingur í samtali við Stundina í gær.

„Þannig að þetta er ekki hrein stytting á vinnutíma“

Í kjara­samningnum er hins vegar tilgreint að vinnutími verður 40 stundir á viku, „nema um skemmri vinnutíma sé sérstak­lega samið“.

Í fyrri kjara­samningi átti starfs­maður áður „rétt á a.m.k. 15 mínútna hléi ef daglegur vinnutími hans er lengri en 6 klukku­stundir“.

Hætt verður að greiða starfs­fólki í vakta­vinnu aukalega laun sem nemur 25 mínútum í yfirvinnu fyrir hverja vakt vegna ótekins kaffihlés.

Nú verður grein samnings sem ákvarðar kaffitíma fjarlægð og svigrúmið nýtt til þess að stytta vinnutíma. 

Hugsanleg lækkun verður á launum í veikinda­leyfi, þar sem breytinga­gjald vegna fyrir­varalítilla breytinga á vöktum, sem hefur verið tveir til þrír yfir­vinnutímar, verður ekki tekið inn í meðaltals­launin sem greidd eru í veikinda­leyfi.

Þá eiga starfs­menn nú rétt á fríi í stað þess að taka bakvaktir. „Starfs­maður á rétt á fríi í stað greiðslu álags fyrir bakvakt. 20 mínútna frí jafn­gildir 33,33% vakta­álagi, 27 mínútna frí jafn­gildir 45% vakta­álagi, 54 mínútna frí jafn­gildir 90% vakta­álagi.“

Atkvæða­greiðslan um samninginn hefst á miðvikudag.

Meiri launahækkun þingmanna og ráðherra

Taxta­hækkun hjúkrunar­fræðinga ein og sér er 68 þúsund krónur á fjórum árum, sem fyrr segir, en til saman­burðar fá þingmenn rúmlega 69 þúsund króna hækkun á þing­fararkaupi, samkvæmt hækkun sem átti að eiga sér stað um áramót.

Ákvörðun um launa­hækkun þingmanna varð opinber eftir að Vísir.is sendi fjármála- og efnahags­ráðuneytinu sérstaka fyrir­spurn um launa­þróunina, í kjölfar þess að ráðuneytið hafði sent frá sér yfir­lýsingu um hálfs árs frestun komandi launa­hækkunar æðstu ráða- og embættis­manna, sem átti að eiga sér stað samkvæmt launa­vísitölu 1. júní næst­komandi. Í yfir­lýsingunni var ekki nefnt að önnur launa­hækkun hefði átt sér stað. Þar áður fengu ráðherrar og þingmenn marg­umrædda 44% launa­hækkun í einu skrefi, eða sem nemur 340 þúsund krónum fyrir þingmenn og hálfri milljón fyrir ráðherra, sem Kjararáð ákvað sama dag og alþingis­kosningar voru haldnar í október 2016. Forseti Íslands ákvað að gefa launa­hækkunina í kjölfarið og skoraði á Alþingi að breyta ákvörðun Kjararáðs.

Nýjasta hækkunin á launum þingmanna og fleiri hefur ekki komið til framkvæmda enn, vegna gaps í lögum.

Hafa ber í huga að hækkunar­tímabilið nær yfir skeið þar sem launa­vísitala hækkaði verulega, en Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn gerir hins vegar ráð fyrir því að hagvöxtur verði neikvæður í ár, sem nemur 7,2%, en aukist aftur um 6% á næsta ári.

Þess fyrir utan eru ýmsar breytingar á kjörum hjúkrunar­fræðinga við nýja samninginn, sem hagnast þó mismun­andi hópum misjafnlega vel.

„Það vantar yfir 400 hjúkrunar­fræðinga bara á Land­spítalanum. Land­spítalinn er bara ekki samkeppnis­hæfur í launum,“ segir hjúkrunar­fræðingur í samtali við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár