Maður smitaður af COVID-19 lést á Húsavík

Ekki er vitað um dán­ar­or­sök erlends ferða­manns sem lést á Heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands í gær.

Maður smitaður af COVID-19 lést á Húsavík
Húsavík Ekki er vitað hvort kór­óna­veiran dró ferða­mann­inn á Húsavík til dauða. Mynd: Shutterstock

Erlendur ferða­maður lést í gær á heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands á Húsavík, en hann reynd­ist smit­aður af veirunni sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. Dán­ar­or­sök liggur ekki fyrir og sjúk­dóms­ein­kennin voru ekki dæmi­gerð fyrir COVID-19, að því er fram kemur í  frétta­til­kynn­ingu. Unnið er að því að skera úr um dán­ar­or­sök­ina.

„Margþætt vinna tekur nú við vegna þessa máls, bæði varð­andi and­lát mannsinns og stuðn­ing við hans nán­ustu,“ segir í til­kynn­ing­unni sem almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, sótt­varna­læknir og embætti land­læknis skrifa undir.

„Þá þarf að styðja við og setja þá heil­brigð­is­starfs­menn sem komu að með­ferð manns­ins í sótt­kví“

„Þá þarf að styðja við og setja þá heil­brigð­is­starfs­menn sem komu að með­ferð manns­ins í sótt­kví, sótt­hreinsa heilsu­gæslu­stöð­ina ásamt því að tryggja nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir Hús­vík­inga. Öll þessi verk­efni eru unnin á vegum almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, í náinni sam­vinnu við sótt­varna­lækni, land­lækni, Rauða kross­inn og er unnið í sam­starfi við aðgerða­stjórn almanna­varna á Norð­ur­landi eystra og heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands.“

Starf­semi Heil­brigð­is­stofn­unar Norð­ur­lands á Húsavík verður í lág­marki, að því segir í til­kynn­ing­unni. „Eins og áður sagði er allt kapp lag á að tryggja að hægt verði að halda uppi mik­il­vægri þjón­ustu við íbúa á starfs­svæði hennar og aðra sem kunna að þurfa á þjón­ustu hennar að halda. Til­kynn­ingar er að vænta um hvernig þjón­ustu verður hagað,“ segir að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár