Útfararstjóri hvetur til að allar útfarir fari fram í kyrrþey

Rúnar Geir­munds­son, for­maður Félags íslenskra útfar­ar­stjóra, telur að best sé að útförum sé flýtt sem kostur sé, að þær fari fram í kyrr­þey en kveðju­at­hafnir fari fram þegar Covid-19 far­ald­ur­inn verði geng­inn yfir.

Útfararstjóri hvetur til að allar útfarir fari fram í kyrrþey
Mælist til að útförum sé flýtt Rúnar segir að aðstand­endur hafi áhyggjur af því að smit komi upp í útförum.

Jarð­ar­förum hefur verið frestað vegna þess að aðstand­endur hinna látnu hafa verið fastir í sótt­kví vegna Covid-19 far­ald­urs­ins. Aðstand­endur sem hafa rætt við útfar­ar­stjóra lýsa áhyggjum af því að í jarð­ar­förum sé hætta á smiti. Verði sett á sam­komu­bann mun það valda vand­ræðum og hætta er á að lík­hús fyllist ef ekki verður brugð­ist við. Rúnar Geir­munds­son útfar­ar­stjóri hvetur til þess að útfarir fari allar fram svo fljótt sem verða má, í kyrr­þey, til að koma í veg fyrir að slíkar aðstæður skap­ist. Minn­ingar- og kveðju­at­hafnir verði haldnar síðar.

Rúnar segir að til vand­ræða horfi, ef sett verður á sam­komu­bann og fólk vilji draga að halda jarð­ar­farir.  Ekki sé pláss í lík­húsum bæj­ar­ins til að geyma þar lík í langan tíma. „Við höfum af þessu nokkrar áhyggjur. Það sem við höfum gert er að flýta athöfnum, að þær fari fram í kyrr­þey og bálför fari fram eftir mjög stutta athöfn við kistu­lagn­ingu. Útför­inni sjálfri, á duft­ker­inu, er þá frestað og mun fara fram síðar. Fólk er bara farið að hafa áhyggjur af því að stefna saman fullt af fólki í útfarir og erfi­drykkjur. Þetta hefur verið gert í nokkru mæli og við höfum reynt að ýta frekar undir þetta en hitt, við útfar­ar­stjór­arnir. Aðstand­endur hafa tekið þessum hug­myndum okkar vel því flestir sem við höfum veitt þjón­ustu hafa talað við okkur útfar­ar­stjór­ana um áhyggjur sínar af því að hugs­an­lega muni smit eiga sér stað við útför­ina. Að ein­hver sem er sýktur muni þá kannski smita allt full­orðna fólkið sem svo oft er stór hluti þeirra sem koma að jarð­ar­förum.“

Má ekki mikið útaf bera

En ekki allir vilja að ætt­ingjar þeirra séu brenndir og sömu­leiðis eru ekki allir til­búnir til að halda útfarir í kyrr­þey.  Rúnar segir að ekki séu nein tök á því að geyma lík um langa hríð verði sett á sam­komu­bann. „Ef af því verður þá erum við í veru­legum vand­ræðum því það er ekki pláss, hvorki í lík­húsum bæj­ar­ins né ann­ars staðar. Það er bara ekki hægt. Það var mjög mikið um and­lát í jan­ú­ar­mán­uði, þegar vond veður geisuðu, og þá urðum við að hætta við greftr­anir. Það var bara ekki hægt að taka grafir sökum veð­urs. Þá lentum við í vand­ræðum strax. Það þarf ekki mikið út af að bera til að við lendum í vand­ræðum með þetta.“

„Það hefur verið rætt að koma upp kæli­gámi við Foss­vog­skapellu“

Rúnar segir að rætt hafi verið að koma upp kæli­gámum til að hægt sé að geyma lík lengur. „Það hefur verið rætt að koma upp kæli­gámi við Foss­vog­skapellu ef að af ein­hverjum ástæðum verður ekki hægt að koma bálförum við strax, svo að lík­hús fyllist ekki af óbrenndum kistum.“

Aðeins ein lík­brennsla er starf­rækt á Íslandi. Hún er í Fossvogi og í henni eru tveir brennslu­ofnar sem komnir eru til ára sinna en brennslan er síðan 1948. Um sex­tíu pró­sent útfara á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru bálfarir og eru allt að eitt þús­und bálfarir á ári. Rúnar segir að ofn­arnir anni ekki miklu meiru en svo, en ef að þörf krefji sé hægt að bregð­ast við. „Það væri hægt að fá fær­an­lega bál­stofu, í gám. Herir hafa notað slíkar bál­stofur þar sem þörf hefur kraf­ist. Við erum ekki að velta þessu fyrir okkur vegna dauðs­falla af völdum veirunnar, heldur ef bálförum fer fjölg­andi almennt.

Hafa áhyggjur af öðrum en sjálfum sér

Rúnar segir að útfar­ar­stjórar hafi ekki áhyggjur af því að þeir eða starfs­menn þeirra muni veikj­ast eða að þeir geti ekki sinnt sínum störfum. „Það sem við höfum áhyggjur af eru allir aðrir starfs­menn. Starfs­menn heil­brigð­is­þjón­ustu og starfs­menn kirkna, prestar, kór­fólk og svo fram­vegis. Ef mik­ill fjöldi þeirra mun veikj­ast þá getum við tæp­lega haldið jarð­ar­farir.“

Rúnar segir að hann mælist til þess almennt við þessar aðstæður sem nú eru uppi að útförum verði flýtt sem kostur er, þær fari fram í kyrr­þey en síðar, þegar betur árar, fari fram kveðju­at­hafnir og minn­ing­ar­stundir um þá látnu. „Ég held að það væri það gáfu­leg­asta í stöð­unni.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár