Stundin hlaut tvenn blaðamannaverðlaun

Blaða­manna­fé­lag Íslands veitti í dag fern verð­laun vegna blaða­mennsku á síð­asta ári. Stundin hlaut tvenn verð­laun: Fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku ásamt Kveik á RÚV í Sam­herj­a­mál­inu og fyrir umfjöllun um ham­fara­hlýnun.

Stundin hlaut tvenn blaðamannaverðlaun
Til­nefndir blaða­menn Jóhann Páll Jóhanns­son, Margrét Mart­eins­dóttir, Steindór Grétar Jónsson, Alma Mjöll Ólafs­dóttir, Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dóttir og Ingi Freyr Vil­hjálms­son.

Stundin hlaut í dag tvenn blaða­manna­verð­laun á verð­launa­af­hend­ingu Blaða­manna­fé­lags Íslands. Annars vegar var Stundin verð­launuð í flokknum umfjöllun árs­ins vegna greina um ham­fara­hlýnun og hins vegar í flokknum rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins ásamt Kveik á RÚV fyrir umfjöllun um Sam­herj­a­skjölin.

Fern blaða­manna­verð­laun voru veitt í húsa­kynnum Blaða­manna­fé­lags Íslands í dag. Auk Stund­ar­innar voru verð­laun veitt Arnari Páli Hauks­syni á Spegl­inum á Rás 1, í flokknum blaða­manna­verð­laun Íslands, vegna umfjöll­unar um kjara­mál og vinnu­markað. Þá voru blaða­menn­irnir Erla Björg Gunn­ars­dóttir, Nadine Guðrún Yaghi, og Jóhann K. Jóhanns­son, Kompási, Frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar, verð­launuð fyrir við­tal árs­ins, við sautján ára stúlku sem lokuð var inni á heim­ili með móður sem glímdi við geð­rask­anir.

Umfjöllun um Samherjamálið verðlaunuð

Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar Blaðmanna­fé­lags Íslands vegna verð­launa í flokki rann­sókn­ar­blaða­mennsku segir að umfjöllun um Sam­herj­a­skjölin hafi „haft mikil áhrif“.

„Fá mál vöktu meiri athygli í íslensku sam­fé­lagi en umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar í sam­vinnu við Al Jazeera og Wikileaks um ásak­anir á hendur Samherja“

Verð­launin voru veitt Aðal­steini Kjart­ans­syni, Helga Seljan og Stefáni Drengs­syni hjá Kveik, og svo Inga Frey Vil­hjálms­syni hjá Stund­inni. „Fá mál vöktu meiri athygli í íslensku sam­fé­lagi en umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar í sam­vinnu við Al Jazeera og Wikileaks um ásak­anir á hendur Samherja um mútu­greiðslur í tengslum við starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu. Umfjöll­unin byggði stað­hæf­ingum fyrrum starfs­manns Samherja í Namibíu og miklu magni gagna sem einnig voru gerð aðgengi­leg almenn­ingi á net­inu sam­hliða birt­ingu frétta af mál­inu. Umfjöll­unin hefur haft mikil áhrif, bæði hér heima og erlendis.“

Umfjöllun ársins um hamfarahlýnun

Þá voru Alma Mjöll Ólafs­dóttir, Jóhann Páll Jóhanns­son, Margrét Mart­eins­dóttir, og Steindór Grétar Jónsson verð­launuð fyrir „yfir­grips­mikla og vand­aða umfjöllun um fyr­ir­séðar afleið­ingar og birt­ing­ar­myndir lofts­lags­vár hér á landi og víðar, aðgerðir stjórn­valda og við­leitni ein­stak­linga til þess að vega upp á móti skað­legum umhverf­is­á­hrifum sem stafað geta af dag­legu lífi fólks.“

Í umfjöll­un­inni var meðal ann­ars fjallað um afleið­ingar lofts­lags­vand­ans fyrir Ísland og Íslend­inga, rætt við fólk sem breytt hefur lífi sínu í þágu bar­átt­unnar gegn ham­fara­hlýnun og rýnt í aðgerðir stjórn­valda.

Alls hlutu sex blaða­menn til­nefn­ingu til verð­launa vegna umfjall­ana í Stund­inni í fyrra. Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dóttir, blaða­maður Stund­ar­innar, var einnig til­nefnd í flokknum blaða­manna­verð­laun Íslands, „fyrir vönduð við­töl og umfjall­anir“.

Tilkynning um blaðamannverðlaun

Rökstuðningur og val dómnefndar Blaðamannafélags Íslands

Besta umfjöllun

Verð­launin hlutu þau Alma Mjöll Ólafs­dóttir, Jóhann Páll Jóhanns­son, Margrét Mart­eins­dóttir, og Steindór Grétar Jónsson, Stund­inni, fyrir umfjöllun um ham­fara­hlýnun. Rök dóm­nefndar voru eft­ir­far­andi: „Í yfir­grips­mik­illi og vand­aðri umfjöllun fjalla blaða­menn Stund­ar­innar um fyr­ir­séðar afleið­ingar og birt­ing­ar­myndir lofts­lags­vár hér á landi og víðar, aðgerðir stjórn­valda og við­leitni ein­stak­linga til þess að vega upp á móti skað­legum umhverf­is­á­hrifum sem stafað geta af dag­legu lífi fólks.“

Aðrir til­nefnir í þessum flokki voru Arn­hildur Hálf­dán­ar­dóttir, RÚV, fyrir þátta­röð­ina Lofts­lags­þerapían og þeir Magnús Hall­dórs­son og Þórður Snær Júl­í­us­son, Kjarn­anum, fyrir umfjöllun um efna­hags­mál

Viðtal ársins

Verð­launin hljóta þau Erla Björg Gunn­ars­dóttir, Nadine Guðrún Yaghi, og Jóhann K. Jóhanns­son, Kompási, Frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar, fyrir við­tal og umfjöllun um barn sem var lokað inni á heim­ili með geð­veikri móður. Rök dóm­nefndar voru eft­ir­far­andi: „Vandað við­tal við 17 ára stúlku, Margréti Lillý Ein­ars­dóttur, sem lýsir því hvernig sam­fé­lagið brást henni þegar hún á grunn­skóla­aldri ólst upp ein hjá móður sem átti við bæði geð­rænan vanda og fíkni­vanda að stríða. Viðtalið vakti verð­skuld­aða athygli og var fylgt eftir með fjölda frétta um stöðu barna í við­kvæmri stöðu, starf­semi barna­vernd­ar­nefnda og fleiri þætti og leiddi meðal ann­ars til þess að bæj­ar­stjóri Sel­tjarn­ar­ness baðst form­lega afsök­unar á því hvernig staðið var að málum í til­viki Mar­grétar Lillýar.“

Aðrir til­nefndir í þessum flokki voru Orri Páll Orm­ars­son, Morg­un­blað­inu, fyrir við­tal við Sævar Þór Jónsson lög­mann og Ari Brynj­ólfs­son, Frétta­blað­inu, fyrir við­tal við fjóra erlenda vagn­stjóra.

Rannsóknarblaðamennska

Verð­launin hljóta þeir Aðal­steinn Kjart­ans­son, Helgi Seljan, Ingi Freyr Vil­hjálms­son og Stefán Drengs­son, Kveik og Stund­inni, fyrir umfjöllun um Sam­herj­a­málið. Rök dóm­nefndar eru eft­ir­far­andi: „Fá mál vöktu meiri athygli í íslensku sam­fé­lagi en umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar í sam­vinnu við Al Jazeera og Wikileaks um ásak­anir á hendur Samherja um mútu­greiðslur í tengslum við starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu. Umfjöll­unin byggði stað­hæf­ingum fyrrum starfs­manns Samherja í Namibíu og miklu magni gagna sem einnig voru gerð aðgengi­leg almenn­ingi á net­inu sam­hliða birt­ingu frétta af mál­inu. Umfjöll­unin hefur haft mikil áhrif, bæði hér heima og erlendis.“

Aðrir til­nefndir í þessum flokki voru þeir Aðal­steinn Kjart­ans­son og Stefán Drengs­son, Kveik, fyrir umfjöllun um Procar-málið og Stefán Einar Stef­áns­son, Morg­un­blað­inu, fyrir bók­ina „Wow, ris og fall flug­fé­lags“ ásamt fréttum og frétta­skýr­ingum um sama mál.

Blaðamannaverðlaun ársins

Verð­launin hlýtur Arnar Páll Hauksson, Spegl­inum, RÚV, fyrir umfjöllun um kjara­mál.Rök dóm­nefndar voru eft­ir­far­andi: „Arnar Páll hefur af djúpri þekk­ingu og ára­langri yfir­sýn fjallað um kjara­mál með afar vönd­uðum hætti í ótal fréttum og frétta­skýr­ingum á tímum mik­ils umróts á vinnu­mark­aði. Hann hefur fjallað ítar­lega um hug­myndir og til­lögur sem lagðar hafa verið fram í kjara­við­ræðum og flytur iðu­lega fyrstu fréttir af þróun mála.“

Aðrir til­nefndir í þessum flokki voru Guðrún Hálf­dán­ar­dóttir, mbl.is, fyrir greina­flokk­inn Skóli fyrir alla og Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dóttir, Stund­inni, fyrir vönduð við­töl og umfjall­anir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár