Kynna hijab fyrir konum á Íslandi

Degi slæð­unnar – World Hijab Day – verður fagnað í fyrsta sinn hér á landi á morgun, laug­ar­dag­inn 1. febr­úar. Dagurinn var fyrst hald­inn árið 2013 í New York og hefur síðan breiðst til á annað hund­rað landa. Madhya Malik, sem skipu­leggur við­burð­inn hér á landi, vonar að sam­koman skili sér í auk­inni með­vit­und um til­veru múslima­kvenna á Íslandi.

Kynna hijab fyrir konum á Íslandi
Madhya Malik Henni finnst lítil þekk­ing á til­veru múslima­kvenna á Íslandi. Þátttaka í World Hijab Day er liður í því að breyta því. Mynd: Davíð Þór

Slæðan sem margar múslima­konur ganga með hylur mis­jafn­lega mikið af and­liti þeirra og hári. Í Evrópu er algeng­ast að sjá konur með hijab, sem hylur eyru, háls, axlir og hár þeirra, að fullu eða að hluta. Frá því árið 2013 hefur dagur slæð­unnar, World Hijab Day, verið hald­inn 1. febr­úar ár hvert. Hann var fyrst hald­inn að und­ir­lagi bar­áttu­kon­unnar Nazma Khan, sem ólst upp í Bronx í New York. Hún vildi með því sýna þeim millj­ónum kvenna um allan heim, sem ganga með hijab, sam­stöðu, auk þess að hvetja til auk­ins umburð­ar­lyndis og skiln­ings. Það fannst henni til­valið að gera með því að leyfa konum sem alla jafna ganga ekki með slæðu, og aðhyll­ast jafn­vel önnur trú­ar­brögð, að máta hana. Eftir því sem full­yrt er á heima­síðu World Hijab Day er deg­inum nú fagnað árlega í 190 löndum um heim allan. „Við sem berum slæðu vitum margar hver til­finn­ingin er, bæði að ganga um göt­urnar með slæð­una og án hennar. Margir sem gagn­rýna okkur fyrir að nota hijab hafa hins vegar aldrei prófað að ganga með slæðu. Mér finnst vit í því að prófa hlut­ina fyrst sjálf, áður en ég gagn­rýni aðra vegna þeirra,“ segir Madhya Malik, 25 ára gömul kona af paki­stönskum upp­runa, sem er skipu­leggj­andi upp­á­kom­unnar hér á landi. 

Slæð­urnar hafa lengi verið umdeildar og vakið upp deilur. Í Sádí-Arabíu og Íran er það skrifað í lög að konur megi ekki fara út úr húsi án slæðu og liggur refs­ing við broti á þeim. Í ýmsum öðrum löndum er slæðan litin horn­auga og notkun hennar jafn­vel bönnuð. Madhya er á móti því að yfir­völd leggi múslima­konum lín­urnar á þennan hátt. Það eigi að vera þeirra eigið val að ganga með eða ganga ekki með slæðu. „Innan íslam er engin refs­ing við því að ganga ekki með hijab. Það er eng­inn grund­völlur fyrir slíkri refs­ingu í Kór­an­inum. Engin rík­is­stjórn hefur rétt á að þvinga konu til að ganga með hijab, né heldur að banna henni það,“ segir hún. 

Madhya er múslimi, er fædd í Þýska­landi þar sem hún bjó til tíu ára ald­urs, þegar fjöl­skyldan flutti til London. Þegar hún var 19 ára gift­ist hún trú­boð­anum Mansoor Malik og hjónin fluttu saman til Íslands. Mansoor starfar hér á landi fyrir Samtök Ahmadi-múslima, frið­sælum minni­hluta­hópi sem þau til­heyra bæði og á rætur að rekja til Pakistan. „Samfélag okkar er mjög lítið hér á landi, við erum ekki nema i kringum tíu manns,“ segir hún og tekur fram að mark­mið þeirra sé ekki að snúa fólki til íslam, heldur að fræða áhuga­sama um trú­ar­brögðin og hvað þau fela í sér í raun. „Við viljum sýna fólki að íslam geti vel sam­ræmst vest­rænum hefðum,“ segir hún. 

Sjálf lifði Mahdya lífi sínu án slæðu til sextán ára ald­urs og seg­ist því vel geta tengt við það að finn­ast skrýtið að hylja hár sitt á almanna­færi. Hún hafi verið efins um hvort hún ætti að bera slæð­una og hún hafi í nokkur ár borið hana á öxlum sér, meðan hún var að kom­ast að nið­ur­stöðu. „Það ganga ekki allar múslima­konur með slæðu, heldur æfa þær sig í hóg­værð á ein­hvern annan hátt,“ segir hún og útskýrir að hóg­værðin sé bæði körlum og konum sem iðki íslam mik­il­væg. „Svo próf­aði ég það einn dag­inn, aftur þann næsta og áður en ég vissi af bar ég hana alla daga. Í dag líður mér eins og ég sé nakin án hennar,“ segir hún og full­yrðir að virð­ing fyrir henni hafi við það auk­ist á götum London. „Slæðan sendir ákveðin skila­boð, til dæmis um að ég vildi ekki að ókunn­ugir menn töl­uðu við mig úti á götu. Meira að segja stelp­urnar í kringum mig urðu allt í einu vina­legri, eins og nú væri ég ekki lengur í sam­keppni við þær,“ segir hún og bætir því við að í hennar til­viki sé slæðan hluti af hennar trú­ar­iðkun. Ástæð­urnar fyrir því að nota hijab séu hins vegar marg­vís­legar. Margar konur geri það öðru fremur af menn­ing­ar­legum ástæðum, til að und­ir­strika að þær til­heyri ákveðnum hópi fólks eða til­teknu landi. 

„Af hverju klæð­ist hún þessu?“

Að mati Madhyu eru miklar rang­hug­myndir ríkj­andi um hvað það þýðir að fylgja íslam, sem er ein af ástæð­unum fyrir því að hún hefur áhuga á að taka þátt í degi slæð­unnar. „Í raun snýst íslam um að vera góð mann­eskja. Íslam kennir okkur líka að sýna landi okkar virð­ingu og í því felst að við förum að íslenskum lögum, hugsum vel um nágranna okkar hér og sjá til þess að sam­fé­lagið sem við búum í njóti góðs af okkur. Að því leyti viljum við vera öðrum fyr­ir­mynd, sem þýðir ekki endi­lega að við viljum að allir verði eins og við.“

En af hverju fannst henni ástæða til að vekja sér­staka athygli á slæð­unni hér á Íslandi? „Múslima­konum fer fjölg­andi á Íslandi, ég hef séð það sjálf á þessum fimm árum sem ég hef búið hér hvað þeim hefur fjölgað. Ég veit að oft þegar fólk sér mig og aðrar konur með slæðu úti á götu spyr það sjálft sig: „Af hverju klæð­ist hún þessu?“ Mér fannst þetta kjörið tæki­færi til að svara þessu og nota tæki­færið til að tala um múslima­konur, segja frá því að hvaða leyti við erum ólíkar hver annarri og hvað sam­einar okkur. Við erum nefni­lega alls ekki allar eins,“ segir Mahya. 

Að lokum seg­ist Madhya von­ast til þess að sem flestar konur, hverrar trúar sem þær eru, mæti í Gerðu­berg á laug­ar­dag­inn. Léttar veit­ingar verði á boðstólum, hún muni flytja stutt erindi og í kjöl­farið gef­ist þeim sem vilja tæki­færi til að skoða slæður og máta þær jafn­vel líka. Dag­skráin hefst klukkan 13.30 og lýkur um 15. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár