Málið fer fyrir dóm og fjölskyldan verður ekki send úr landi á næstunni

Kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur sam­þykkt umsókn um frestun rétt­ar­á­hrifa í máli Razia Abassi og Ali Ahmadi, átján og nítján ára nýbak­aðra for­eldra frá Afganistan sem hefur verið synjað um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Í frest­un­inni felst að þeim er heim­ilt að dvelja hér á landi þar til að mál þeirra fer fyrir dóm. Verjandi hjón­anna segir að mál verði höfðað á næstu dögum.

Málið fer fyrir dóm og fjölskyldan verður ekki send úr landi á næstunni
Ali og Razia Þau verða ekki send úr landi fyrr en mál þeirra hefur verið rekið fyrir dómi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Þetta er óvænt og afskap­lega ánægju­legt. Ég átti frekar von á að krafan yrði ekki sam­þykkt, enda er algeng­ast að ekki sé fall­ist á kröfu um frestun rétt­ar­á­hrifa,“ segir Magnús Davíð Norðdahl, lög­maður hjón­anna. Kæru­nefnd útlend­inga­mála vísar til hags­muna nýfædds barns þeirra Raziu Abassi og Ali Ahmadi, í rök­stuðn­ingi þeirrar ákvörð­unar að fall­ast á kröfu um frestun rétt­ar­á­hrifa í máli þeirra. Frest­unin felur það í sér að þeim er heim­ilt að dvelja hér á landi á meðan mál þeirra er rekið fyrir dómi. 

Þau Razia og Ali, sem eru 18 og 19 ára gömul, komu til Íslands síð­ast­liðið sumar. Þá var Razia gengin nokkra mán­uði með fyrsta barn þeirra. Þau flúðu heima­land sitt Afganistan fyrir fimm árum og hafa síðan verið á hrak­hólum, dvalist í Íran, Tyrk­landi og síð­ast í Grikk­landi. Þar hlutu þau alþjóð­lega vernd, sem að þeirra sögn var verra en að hafa hana ekki, því það þýddi að þau höfðu ekki lengur rétt á að dvelja í hús­næði ætl­uðu flótta­mönnum, en höfðu samt sem áður litla sem enga mögu­leika á að sjá sér far­borða og urðu fyrir miklum for­dómum og mis­rétti. Þau sögðu frá því í við­tali í Stund­inni að þau hafi ákveðið að yfir­gefa Grikk­land þegar gengið var í skrokk á henni á götu úti, en hann hafi nokkrum sinnum lent í slíkum árásum. 

Razia og Ali sóttu um alþjóð­lega vernd á Íslandi en Útlend­inga­stofnun hafn­aði þeirri beiðni 2. sept­em­ber, á þeim grund­velli að þau hefðu þegar vernd í Grikk­landi. Sú ákvörðun var kærð til kæru­nefndar útlend­inga­mála, sem stað­festi synj­un­ina 5. des­em­ber. Þá var Razia nær full­gengin með barn þeirra, sem fædd­ist á annan í jólum.

Eftir að hafa fengið synj­an­irnar tvær leit­uðu hjónin til Magnúsar. Hann lagði fyrir þeirra hönd fram tvær kröfur til kæru­nefndar útlend­inga­mála. Annars vegar um frestun rétt­ar­á­hrifa, sem nú hefur verið sam­þykkt, og hins vegar um end­ur­upp­töku máls­ins. Ekki hefur borist svar við þeirri kröfu. 

Ljóst er að mál hjón­anna fer nú fyrir dóm. „Nú höfum við fimm daga til að stefna í mál­inu og munum gera það í vik­unni og óska jafna­framt eftir flýti­með­ferð,“ segir Magnús. Hann segir að í ljósi reynsl­unnar sé ólík­legt að fall­ist verði á flýti­með­ferð. Málinu verði því stefnt inn með hefð­bundnum hætti og það geti því tekið allt að því átta mán­uði að fá með­ferð fyrir dómi.

„Nú höfum við fimm daga til að stefna í mál­inu og munum gera það í vik­unni og óska jafna­framt eftir flýti­með­ferð“ 

Sú breyt­ing var gerð á reglu­gerð um útlend­inga síð­ast­liðið sumar að Útlend­inga­stofnun var gert heim­ilt að taka til efn­is­með­ferðar umsókn barns sem hefur fengið vernd í öðru ríki, séu meira en tíu mán­uðir liðnir frá því að umsókn barst íslenskum stjórn­völdum. Áður var frest­ur­inn 12 mán­uðir. Lík­leg­ast er að sá tíma­frestur muni líða, á meðan þau Razia og Ali bíða þess að mál þeirra fari fyrir dómi. Á meðan á bið þeirra stendur, eftir því að mál þeirra fái nið­ur­stöðu dóm, eru því allar líkur á að þau upp­fylli þessi skil­yrði sem leiða til þess að þau fái efn­is­með­ferð, óháð nið­ur­stöðu dóms­ins. „Þetta er því ein­stak­lega ánægju­legur áfanga­sigur,“ segir Magnús. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár