Rafmagnstruflanir og tjón víða um land vegna veðurofsans

Næsta lægð nálg­ast nú landið, og allt stefnir í áfram­hald­andi þörf á var­úð­ar­ráð­stöf­unum vegna vef­urofsa.

Raf­magns­trufl­anir eru víða um land vegna verðu­ofs­ans, sem gengið hefur yfir landið í dag. Áfram­hald gæti orðið á þörf­inni fyrir var­úð­ar­ráð­stafnir vegna veð­urofsa, þar sem önnur lægð nálg­ast nú landið, að því er segir á veð­ur­vefnum Blika.is. „Nú þegar íbúar á sunn­an­verðu land­inu eru farnir að treysta sér út eftir föstu­dagslægð­ina er rétt að fara að fjalla um næstu lægð sem dýpkar nú ört og nálg­ast landið hratt úr suð­vestri. Samkvæmt spám stað­næm­ist lægðin svo suður af land­inu. Vindur verður minni á land­inu heldur verið hefur í dag. Þó verður hvasst (yfir 20 m/s) á suð­aust­ur­landi sam­fara úrkomu,“ segir á vefnum.

Mikið álag hefur verið hjá öllum full­trúum almanna­varna í land­inu, vegna vef­urofs­ans, en víða hafa þak­plötur fokið um og valdið tjóni, sem og aðrir lausa­munir.

Á Facebook síðu Lands­nets segir að raf­magni hafi slegið út á iðn­garð­inum á Grund­ar­tanga, þar sem Elkem og Norðurál eru með starf­semi. „Núna um sex­leytið fundu margir fyrir flökti á raf­magns­ljós­unum en ástæðan er högg sem kom á kerfið þegar við lentum i vand­ræðum, lík­leg­ast vegna seltu, í tengi­virk­inu okkar á Brenni­mel sem varð þess vald­andi að straum­laust varð hjá Elkem og Norð­ur­áli. Verið er að vinna í að koma kerf­inu upp aftur og skoða hvort það þurfi að fara í að skola tengi­virki,“ segir í færslu Lands­nets.

Á vef RÚV segir að spennu­flöktið hjá Lands­neti hafi áhrif á allt raf­dreifi­kerfi Veitna. Heita­vatn­dælur víða um borg­ina slógu út í kjöl­farið, segir á vef RÚV. „Efri byggðir borg­ar­innar finna nú fyrir vatn­leysi af þeim sökum. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Veitum sló dæl­unum aftur út þegar annað flökt kom á raf­magns­kerfið á sjö­unda tím­anum. Gera megi ráð fyrir að heita vatnið verði komið aftur á innan stundar nema fleiri slík atvik verði,“ segir jafn­framt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár