Farið að hvessa hressilega á Vestfjarðamiðum – Sjórinn gekk yfir varðskip

For­sæt­is­ráð­herra biður fólk um að fara var­lega og hugsa til þeirra sem standa vakt­ina.

Staðan kl. 11:46 þriðjudaginn 10. desember 2019
Staðan kl. 11:46 þriðju­dag­inn 10. des­em­ber 2019 Mynd: windy.com

Varla hefur farið fram hjá mörgum að framundan er fár­viðri sem mun ganga yfir landið í dag og á morgun. Veð­ur­stofan hefur í fyrsta sinn gefið út rauða við­vörun frá því að lita­kóða­kerfið var tekið upp árið 2017, en alls staðar ann­ars staðar hefur verið gefin út app­el­sínugul við­vörun.

Þá mun veðrið hafa gríð­ar­leg áhrif á sam­fé­lagið allt en skóla­hald, atvinnu­líf og sam­göngur munu riðl­ast víða um land.

Reykja­vík­­­ur­­borg hef­ur beðið for­eldra og for­ráða­menn barna að sækja börn sína strax að skóla­degi lokn­um í dag svo að all­ir, börn, for­eldr­ar og starfs­­fólk skóla og leik­­skóla, geti verið komn­ir til síns heima áður en ofsa­veður skellur á, um 15:00, eins og spár Veður­stofu Íslands gera ráð fyr­ir.

Þá verður allt frí­­stunda- og fé­lags­mið­stöðva­starf fellt nið­ur, auk þess sem sund­laug­­ar, úti­­bú Borg­­ar­­bóka­safns­ins og söfn á veg­um borg­­ar­inn­ar verða lokuð eft­ir klukk­an 14:00.

Varðskipið Þór til taks í Ísafjarðardjúpi

Í frétta­til­kynn­ingu frá Land­helg­is­gæsl­unni kemur fram að varð­skipið Þór sé til taks í Ísa­fjarð­ar­djúpi ef á þurfi að halda en skipið hefur sinnt eft­ir­liti á haf­svæð­inu umhverfis landið und­an­farna daga.

Þá séu þyrlur Land­helg­is­gæsl­unnar sömu­leiðis til taks í Reykja­vík. „Eins og gefur að skilja er lítil skipa­um­ferð á Vest­fjörðum. Fjögur skip eru undir Grænu­hlíð og eitt tank­skip er á leið fyrir Horn­bjarg og fer suður með Vest­fjörðum. Engin skipa­um­ferð er á mið­unum norður af land­inu en stjórn­stöð Land­helg­is­gæsl­unnar fylgist vel með skipa­um­ferð umhverfis landið allt,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Land­helg­is­gæslan lét fylgja með mynd­bönd sem tekin voru af áhöfn varð­skips­ins Þórs þegar skipið var út af Dýra­firði snemma í morgun. Eins og sjá má var þá farið að hvessa hressi­lega á Vest­fjarða­miðum og gekk sjór­inn yfir varð­skipið.

„Förum varlega og hugsum til þeirra sem standa vaktina með okkur“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hvetur í stöðu­upp­færslu á Facebook alla til að fara var­lega í dag og á morgun og vera ekki á ferð­inni að óþörfu.

„Við­bragðs­að­ilar eru til­búnir, Lands­björg og björg­un­ar­sveitir um land allt, lög­reglan og almanna­varna­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra, starfs­fólk sveit­ar­fé­laga, sjúkra­flutn­inga­menn og slökkvi­lið, Land­helg­is­gæslan og hafn­ar­verðir, Vega­gerðin, Veð­ur­stofan og snjó­eft­ir­lits­menn, ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækin sem miðla upp­lýs­ingum í sam­starfi við Safe tra­vel, Sam­hæf­ing­ar­mið­stöðin í Skóg­ar­hlíð sem mun tryggja að við séum öll á sömu blað­síðu, Rauði kross­inn og fjöl­miðlar sem miðla upp­lýs­ingum til okkar allra. Og svo eru auð­vitað margir fleiri sem þurfa að sinna sínum störfum þrátt fyrir veður og vinda.

Þannig að förum var­lega og hugsum til allra þeirra sem standa vakt­ina með okkur, ekki aðeins í dag og á morgun, heldur standa þá vakt árið um kring,“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár