Fólk verði komið heim til sín klukkan 15:00

Reykja­vík­ur­borg hvetur for­eldra til að sækja börn sín snemma á morgun, þar sem gert er ráð fyrir ofsa­veðri.

Reykja­vík­ur­borg hef­ur beðið for­eldra og for­ráða­menn barna að sækja börn sína strax að skóla­degi lokn­um á morg­un, þriðju­dag, svo að all­ir, börn, for­eldr­ar og starfs­fólk skóla og leik­skóla, geti verið komn­ir til síns heima áður en ofsa­veður skellur á, um 15:00, eins og spár Veðstur­stofu Íslands gera ráð fyrir.

Þá verður allt frí­stunda- og fé­lags­mið­stöðva­starf fellt niður, auk þess sem sund­laug­ar, úti­bú Borg­ar­bóka­safns­ins og söfn á veg­um borg­ar­inn­ar verða lokuð eft­ir klukk­an 14:00.

„Lok­an­ir skóla og stofn­ana eru til­komn­ar vegna ör­ygg­is­ráð­staf­ana en eng­inn ætti að vera á ferli í veðri eins og spáð er. Fólk er beðið um að fylgj­ast vel með veðri í fjöl­miðlum og fylgja til­mæl­um yf­ir­valda,“ seg­ir í til­kynn­ingu á vef Reykja­vík­ur­borg­ar. „Eng­inn ætti að vera á ferli eft­ir klukk­an 15 á morg­un nema brýn nauð­syn beri til.“

Til­kynn­ing Reykja­vík­ur­borg, eins og hún birt­ist á vef borg­ar­innar, fer hér að neðan:

Gefin hefur verið út app­el­sínugul við­vörun vegna óveð­urs­ins sem spáð er. For­eldrar og for­ráða­menn barna eru beðnir um að sækja börn sín strax að skóla­degi loknum til að tryggt sé að allir, börn, for­eldar og starfs­fólk geti náð heim til sín áður en veðrið skellur á. For­eldrar leik­skóla­barna sæki börn sín fyrir kl. 15.

„Allt frí­stunda- og félags­mið­stöðva­starf í Reykja­vík fellur niður svo og starf skóla­hljóm­sveita. Eldri grunn­skóla­nem­endur fara því beint heim eftir skóla­dag og eru for­eldrar beðnir um að sjá til þess að þeir séu ekki á ferli þegar og eftir að veðrið skellur á.

Akst­urs­þjón­usta fatl­aðra mun aka heim þeim skóla­börnum sem þeirrar þjón­ustu njóta, strax að loknum skóla­degi.

Þá munu sund­laugar, útibú Borg­ar­bóka­safns­ins og söfn á vegum Reykja­vík­ur­borgar verða lokuð eftir kl. 14 á morgun.

Fólk er beðið um að huga að lausa­munum sem geta fokið og minnir Sorp­hirða Reykja­víkur íbúa sér­stak­lega á að huga vel að sorp­í­látum sínum og tryggja að þau fjúki ekki.

Lokanir skóla og stofn­ana eru til­komnar vegna örygg­is­ráð­staf­ana en eng­inn ætti að vera á ferli í veðri eins og spáð er. Fólk er beðið um að fylgj­ast vel með veðri í fjöl­miðlum og fylgja til­mælum yfir­valda.

App­el­sínugul við­vörun þýðir að það séu miðl­ungs eða mikl­ar lík­ur á veðri sem geti valdið mikl­um sam­fé­lags­leg­um áhrif­um, tjóni eða slys­um og hugs­an­lega ógnað lífi og lim­um ef aðgát er ekki höfð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár