Varað við óveðri - Aðgerðastjórn í Skógarhlíð virkjuð

Brjálað veður er nú víða, og vind­hviður geta verið vara­samar þeim sem eru á ferli.

Björg­un­ar­sveitir hafa haft í nógu að snú­ast á suð­vest­ur­horni lands­ins í dag vegna veð­urofsa sem nú gengur yfir. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Veð­ur­stofu Íslands geta vind­hviður verið vara­samar og má búast við mjög snörpum vind­hviðum við fjöll, t.d. á Kjal­ar­nesi og við Hafn­ar­fjall.

Aðgerða­stjórn hefur verið virkjuð í Skóg­ar­hlíð til að hafa umsjón með verk­efnum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en óhöpp hafa verið óveru­leg og björg­un­ar­starf gengið vel.

Fólk hefur verið varað við því að vera á ferli að óþörfu.

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar var kölluð út í sjúkra­flug til Eyja og var flug­ferðin vanda­söm, sökum óveð­urs­ins, að því er segir í til­kynn­ingu. „TF-LIF fór í loftið frá Reykja­vík­ur­flug­velli klukkan 12:20 og var haldið þangað í lágum hæðum um Þrengsli og svo með suð­ur­strönd lands­ins. Þyrlan kom til Vest­manna­eyja um eitt­leytið var þá veðrið þar orðið mjög vont og aðflugið krefj­andi. Af þeim sökum lenti þyrlan við vest­ur­enda flug­braut­ar­innar þangað sem sjúkra­bíll kom með sjúk­ling­inn. TF-LIF fór aftur í loftið klukkan 13:18 og lenti svo á Reykja­vík­ur­vík­ur­flug­velli hálf­tíma síðar. Sjúk­ling­ur­inn var svo fluttur á Land­spít­al­ann með sjúkra­bíl,“ segir í til­kynn­ingu frá Land­helg­is­gæsl­unni.

Til marks um veð­urofs­ann meðan á útkalli þyrl­unnar stóð má nefna að flug­hraði þyrl­unnar í mót­vind­inum á leið­inni til Eyja var 88 hnútar (162 km/klst) en í með­vind­inum á baka­leið­inni fór hann upp í allt að 190 hnúta (352 km/klst).

Samkvæmt vind­mæli þyrl­unnar fóru vind­hviður í 35 metra á sek­úndu, sem er fár­viðr­is­styrkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár