Jólabasar, jólatónleikar og hamfarahlýnun

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 6.-19. des­em­ber

Jólabasar, jólatónleikar og hamfarahlýnun

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

Ljósabasar

Hvar? Nýlista­safnið
Hvenær? Til 22. des­em­bes
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Hinn árlegi jóla­basar Nýlista­safns­ins er snú­inn aftur, en á honum má finna lista­verk eftir mynd­list­ar­menn sem koma úr ýmsum áttum. Verkin eru öll til sölu, en gestum er frjálst að kíkja við, ef aðeins til að sjá nýj­ustu verk úr gras­rót­inni, svo og frá heims­frægum lista­mönnum. Á sýn­ing­unni er til dæmis að finna nýtt verk mál­ar­ans Þránds Þór­ar­ins­sonar, Kóka­kóla­jóla­svein­inn, sem sést hér að ofan; ljós­mynd eftir Ragnar Kjart­ans­son af honum sjálfum að mála sem heitir Lista­manns­fá­viti heldur að hann hafi eitt­hvað að segja um heim­inn; skúlp­t­úra til­eink­aða sjálfs­ást eftir Katrínu I. Jóns­dóttur Hjör­dís­ar­dóttur og margt fleira.

Póst-dreifing tónleikar

Hvar? Hress­ing­ar­skál­inn
Hvenær? 6. des­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: Frjáls fram­lög

Póst-dreif­ing er ný og fram­sækin sjálf­stæð tón­list­ar­út­gáfa með mikið af indí- og pönk-sveitum úr gras­rót­inni á sínu færi. Má þar nefna til dæmis bíl­skúr­spönk­sveit­ina Korter í Flog, lag­skiptu rokk­ar­ana í Stirni, raf­magn­aða lo-fi dúett­inn TCJM og kraft­miklu pönk­ar­ana í GRÓU, en allir stíga á svið á þessum tón­leikum.

Eivør jólatónleikar

Hvar? Harpa
Hvenær? 6. & 8. des­em­ber kl. 20.30
Aðgangs­eyrir: 9.900 kr.

Hin mik­il­feng­lega fær­eyska ný-folk tón­list­ar­stjarna, Eivør, heldur jólatón­leika á Íslandi þriðja árið í röð þar sem hún flytur meðal ann­ars upp­á­hald­s­jóla­lögin sín. Ísland hefur verið hennar annað heim­ili og hún hefur eign­ast marga aðdá­endur hér með tign­ar­legri rödd sinni og sviðs­fram­komu. Hún kemur fram með hljóm­sveit og vel völdum gestum.

Jólabíó

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 6.–14. des­em­ber
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Bíó Paradís heldur áfram að sýna vel valdar jóla­myndir í des­em­ber. Sjá má róm­an­tíska jólasmell­inn The Holiday 6. des­em­ber, aðra Harry Potter mynd­ina þann 7., fjöl­skyldu­vænu grín­mynd­ina National Lampoon's Christmas Vacation 13., og að lokum þriðju Harry Potter mynd­ina 14. des­em­ber. Allar mynd­irnar eru sýndar kl. 20.00, en báðar Harry Potter mynd­irnar eru einnig sýndar kl. 15.00.

Umbra jólatónleikar

Hvar? Laug­ar­nes­kirkja
Hvenær? 7. des­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Umbra hefur nú um ára­bil sér­hæft sig í flutn­ingi fornrar og nýrrar tón­listar og í þeirri list að vekja forn þjóð­lög eða gleymda lag­boða til lífs­ins. Hópurinn mun halda árlega jólatón­leika sína, en á efn­is­skránni verða meðal ann­ars sjald­heyrð jóla­lög frá mið­öldum, bæði þá íslensk og erlend.

Ég hlakka svo til

Hvar? Ásmund­ar­salur
Hvenær? 7.–30. des­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Ég hlakka svo til er sölu­sýn­ing um 150 lista­manna. Verið er að end­ur­vekja gamla hefð en sölu­sýn­ingar voru haldnar fyrir jólin í List­vina­salnum á fimmta ára­tug síð­ustu aldar. Þá voru verk þekkt­ustu lista­manna þjóð­ar­innar sýnd sam­hliða verkum yngri og lítt þekkt­ari lista­manna. 

Jólatónleikar Hljómsveitarinnar Evu

Hvar? Iðnó
Hvenær? 8. des­em­ber kl. 18.00 & 21.00
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Tvíeykið sem stendur að baki Hljóm­sveit­inni Evu heldur sér­stak­lega afslapp­aða og huggu­lega jólatón­leika á öðrum í aðventu. Hljóm­sveitin segir að stemn­ingin verði „ull­ar­sokkar og ein­fald­leiki“ en auk þess að flytja ýmis vel kunn jóla­lög mun hljóm­sveitin einnig frum­flytja nýtt og áður óheyrt jóla­lag úr eigin smíðum. 

Með líkamann að vopni

Hvar? Miðpunkt
Hvenær? Til 8. des­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Á þess­ari sýn­ingu koma saman ólíkir lista­menn sem eiga það sam­eig­in­legt að vinna með lík­amann og nýta efni­við sinn á kóreograf­ískan hátt. Lista­menn sýn­ing­ar­innar eiga sam­eig­in­lega sögu í dans­hefð og kóreografíu en eru nú að nýta þá aðferða­fræði við sköpun á mynd­verkum sem tækla meðal ann­ars póli­tíska ver­und lík­ama.

The Vintage Caravan

Hvar? Hard Rock Café
Hvenær? 13. des­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Þrí­menn­ing­arnir í rokksveit­inni The Vintage Caravan spila blús­rokk í anda Deep Purple og Led Zeppelin. Þrátt fyrir að eng­inn með­limur TVC hafi verið fæddur þegar áður­nefndu sveit­irnar hengdu upp hljóð­færi sín spila strák­arnir tón­list sína af mik­illi inn­lifun og skemmta sér kon­ung­lega við það. Sveitin spilar aftur á heima­velli eftir langan túr erlendis.

Sähkökitarakvartetti og Hafdís Bjarnadóttir

Hvar? Mengi
Hvenær? 13. des­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Sähkökit­ara­kvar­tetti er finnsk-íslenskur raf­gít­ar­kvar­tett sem sér­hæfir sig í flutn­ingi nýrrar tón­listar á jaðri djass, nútímatón­listar og anar­kís­kri rokktón­list. Markmið kvar­tetts­ins er að brjóta niður ímynd­aða múra á milli mis­mun­andi stíl­teg­unda tón- og hljóð­listar. Með honum spilar gestagít­ar­leik­ar­inn Hafdís Bjarna­dóttir.

Bráðnun jökla 1999/2019

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? Til 9. febr­úar
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Árið 1999 tók Ólafur Elíasson myndir af nokkrum tugum jökla á Íslandi. Tuttugu árum síðar sneri hann aftur til að ljós­mynda jöklana á nýjan leik. Á sýn­ing­unni sam­einar ný ljós­mynda­röð myndir frá 1999 og 2019 og sýnir fram á ham­farir lofts­lags­hlýn­unar.

Jólaflækjan

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? Til 22. des­em­ber
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Þessi fjöl­skyldu­væni ein­leikur skartar Bergi Þór Ing­ólfs­syni í aðal­hlut­verki, en hann er einnig höf­undur og leik­stjóri sýn­ing­ar­innar, sem var til­nefnd til Grímu­verð­launa. Sýningin fjallar um Einar sem lok­ast uppi á háa­lofti heima hjá sér á aðfanga­dag og til­raunir hans til að halda dag­inn engu að síður hátíð­legan.

Lucky me?

Hvar? Kling & Bang
Hvenær? Til 12. jan­úar
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Lista­menn­irnir þrír sem eru að baki þess­ari sýn­ingu eiga það sam­eig­in­legt að vera af fil­ip­p­eyskum upp­runa og er þessi sýn­ing til­einkuð nostal­gískri túlkun á fil­ip­p­eyskri menn­ingu. Titill sýn­ing­ar­innar vísar í hinar vin­sælu skyndinúðlur Lucky Me!, núðlur sem finn­ast á hverju fil­ip­p­eysku heim­ili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár