Fárviðri spáð - Ör dýpkun lægðarinnar sem gerir hana „skeinuhætta“

Fárviðri er spáð á öllu land­inu í dag, einkum seinni­part­inn og í kvöld.

Það stefnir í hið versta verður í dag og verður fár­viðri um svo til allt land seinni­part­inn og í kvöld, gangi spár Veð­ur­stofu Íslands eftir.

Almanna­varnir hafa beðið íbúa á Suð­ur­landi um að halda sig heima eftir klukkan eitt í dag og íbúa ann­arra lands­hluta eftir klukkan fimm - meðal ann­ars á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

Einar Svein­björns­son, veð­ur­fræð­ingur, segir að hröð dýpkun lægð­ar­innar geri hana skeinu­hætta og um margt sér­staka. „Það er ör dýpkun lægð­ar­innar og sér­lega mikið loft­þrýst­ings­fall á undan skilum hennar sem gerir óveðrið skeinu­hætt. Norður af land­inu og yfir Græn­landi heldur köld hæð á móti. Þarna á milli mæt­ast stálin stinn, þ.e. beint yfir Íslandi. Vindátt er aust­læg og afar fátítt er að sjá í veð­ur­spám þetta mikla og almenna vindröst þess­arar gerðar yfir nán­ast öllu land­inu,“ segir Einar.

Hann segir að í ljósi þess hve mik­ill snjór sé yfir öllu land­inu þá þurfi ekki mikla snjó­komu til að gera „glóru­lausan“ byl. „Hvass vindur dugar einn og sér, enda er það vel þekkt að fluttn­ingur lausa­mjallar eykst í 3 veldi af vind­hrað­anum. Fljót­lega upp úr hádegi verður þannig lítið skyggni syðst á land­inu og þeir sem eiga erindi austur yfir fjall eða í bæinn af Suð­ur­landi ættu að hyggja á ferðir fyrir miðjan dag­inn. Sama með Kjal­ar­nes, þar sem blæs hressi­lega í þess­ari vind­átt og snjó­kófið kemur þess vegna ofan úr Esjunni. Á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu snjóar einnig síð­degi og fram á kvöldið og í 3 til 4 klst verður hríð­ar­veður og fennir í skafla. En skilin ganga yfir á end­anum og rofar til. En um það leyti hlánar líka, hiti fer í 4 til 5°C um tíma og vatn tekur af renna og leita ser næsta nið­ur­falls. Alls ekki þó nein asa­hláka, frekar að tala um væga leys­ingu,“ segir Einar.

Lægðinni er síðan spáð vestur fyrir Reykja­nes og suð­vest­an­lands getur hvesst að nýju á þriðju­dags­morgun, en eins og alltaf þegar veðrið er ann­ars vegar, þá er nokkur óvissa um fram­vindu mála.

Einar segir að á Norður-Atl­ants­haf­inu verði þessa dag­ana mörg stefnu­mót ólíkra loftmassa sem leiði til mynd­unar óveð­urslægða. „Tíðindi hafa borist frá Skand­in­avíu og Bret­landseyjum um veð­ur­áraun þar sem rekja má til óró­leik­ans sem verður þegar heim­skauta­loft streymir í sífellu frá N-Ameríku og langt suður á Atl­ants­haf. Stefnir hins vegar í breyt­ingar um miðja vik­una og dregur úr krafti lægð­anna a.m.k. fyrst um sinn,“ segir Einar Svein­björns­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár