Fyrrverandi verkalýðsforingi sakaður um verkfallsbrot á Morgunblaðinu

Stefán Einar Stef­áns­son, frétta­stjóri við­skipta á Morg­un­blað­inu og fyrr­ver­andi for­maður VR, er í hópi þeirra blaða­manna sem eru taldir hafa framið verk­falls­brot. Blaða­manna­fé­lag Íslands stefndi Árvakri fyrir Félags­dóm vegna verk­falls­brota. Í dag birt­ust fréttir aftur á meðan verk­falli stóð.

Fyrrverandi verkalýðsforingi sakaður um verkfallsbrot á Morgunblaðinu
Stefán Einar Stef­áns­son Frétta­stjór­inn er fyrr­ver­andi for­maður VR.

Annað verk­fall blaða­manna í Blaða­manna­fé­lagi Íslands hófst klukkan 10:00 í morgun og mun það standa til klukkan 18:00 í dag. Engu að síður hafa fjölda­margar fréttir birst á vef Morg­un­blaðs­ins, Mbl.is, eftir að verk­fallið hófst, sem brýtur í bága við túlkun og við­mið Blaða­mann­fé­lags­ins á fram­kvæmd verk­falls­ins. Frétta­stjóri við­skipta á Morg­un­blað­inu segir að for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins stýri ekki hans vinnu og að fréttir sem hann hefur skrifað muni birt­ast á meðan að á verk­fall­inu stendur.

Fyrsta verk­stöðvun Blaða­mann­fé­lags­ins í kjara­deilum þess við Samtök atvinnu­lífs­ins fór fram síð­ast­lið­inn föstu­dag og stóð þá í fjóra tíma. Á þeim tíma birt­ist á þriðja tug frétta á mbl.is og túlkar Blaða­manna­fé­lagið það sem verk­falls­brot og hefur stefnt Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, fyrir Félags­dóm vegna verk­falls­brota.

Ber ábyrgð á birtingu frétta í verkfalli

Í dóm­kröfum Blaða­manna­fé­lags­ins er þess kraf­ist að við­ur­kennt verði að Árvakur hafi brotið lög um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur með því að hafa falið níu manns að sinna störfum á mbl.is á meðan að á verk­fall­inu stóð. Meðal þeirra sem taldir eru upp í stefn­unni eru Stefán Einar Stef­áns­son, frétta­stjóri við­skipta­f­rétta, sem höf­undur fréttar með fyr­ir­sögn­inni „Hægir á eigna­aukn­ing­unni“, sem birt­ist klukkan 11:00, klukku­tíma eftir að verk­fall hófst.

Stefán Einar er sið­fræð­ingur og fyrr­ver­andi for­maður VR stétt­ar­fé­lags. Meðal ann­arra sem nefnir eru í stefnu Blaða­manna­fé­lags­ins er Auðunn Georg Ólafsson, sem ráð­inn var frétta­stjóri Útvarps árið 2005. Hann tók til starfa 1. apríl 2005 en lét af störfum sam­dæg­urs, eftir að hafa orðið tví­saga í við­tali og eftir hörð mót­mæli frétta­manna á Rík­is­út­varp­inu við ráðn­ingu hans.  

„Ég skrif­aði þessa frétt og þú getur bara flett upp á því sjálfur á mbl.is að hún birt­ist á þessum tíma,“ segir Stefán Einar í sam­tali við Stundina. Spurður hvort hann hafi birt hana á umræddum tíma segir Stefán Einar að hann beri jú ábyrgð á því að fréttin hafi birst á meðan að á vinnu­stöðvun stóð.

„Hjálmar Jónsson er bara eng­inn verk­stjóri yfir mér eða öðru starfs­fólki hér“

Morg­un­blaðið hefur sem fyrr segir birt fjölda frétta í dag síðan verk­fall hófst klukkan 10:00. Spurður hvort hann hafi skrifað ein­hverjar þær frétta seg­ist Stefán Einar ekki hafa yfir­lit yfir það. „Ég geri ráð fyrir því að í dag muni birt­ast fréttir sem að ég hef skrifað, í gær og í morgun áður en verk­stöðvun hófst.“

Hafnar verkfallsbrotum á Morgunblaðinu

Þegar Stefáni Einari er bent á að það sé túlkun Blaða­manna­fé­lags­ins að ekki sé heim­ilt að tíma­stilla fréttir til birt­ingar á meðan að á verk­stöðvun standi svarar hann: „Hjálmar Jónsson [for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins] er bara eng­inn verk­stjóri yfir mér eða öðru starfs­fólki hér.“ Stefán segir að hann líti ekki svo á að hann sé með því að tíma­stilla fréttir til birt­ingar á meðan að á verk­fall­inu standi sé hann að ger­ast verk­falls­brjótur. „Mér dytti að sjálf­sögðu aldrei í hug að brjóta verk­fallslög, þó að Hjálmar Jónsson haldi öðru fram. Ég hef ein­fald­lega fylgt þeim við­miðum sem að hafa verið gefin út af Samtökum atvinnu­lífs­ins um það hvernig að þessu skuli staðið, og er það byggt á dómafor­dæmum Félags­dóms. Þannig að það er alveg á hreinu af minni hálfu að öll þau skrif sem ég hef komið að á föstu­dag­inn fyrir viku, og einnig í dag, séu vel innan þeirra marka og ég myndi ekki taka þátt í að gera eitt­hvað sem teld­ist verk­falls­brot.“

Spurður hvort hann viti til þess að verið sé að brjóta verk­fallslög hjá Morg­un­blað­inu neitar Stefán Einar því og segir að ef svo væri þá kæmi það sér veru­lega á óvart. „Ég held að það sé alveg úti­lokað að mönnum dytti það í hug.“ Þegar bent er á meðal þeirra frétta sem birst hafa á vef Morg­un­blaðs­ins eftir að verk­stöðvun hófst sé meðal ann­ars frétt byggð á til­kynn­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar, sem birt var eftir að verk­fall blaða­manna hófst, og Stefán Einar spurður hvort það sé þá ekki verk­falls­brot bendir Stefán Einar á að bæði hafi rit­stjórar heim­ild til að skrifa fréttir á meðan að á verk­fall­inu standi og eins séu starf­andi blaða­menn á mbl.is sem ekki séu félagar í Blaða­manna­fé­lag­inu. Hann gangi út frá því að ein­hver úr þeim hópi hafi skrifað umrædda frétt, sem ekki er merkt neinum ákveðnum blaða­manni. „Ég er búinn að segja þér að ég lít svo á að hér séu engin verk­falls­brot framin. Þessi frétt skrifar sig ekki sjálf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár