Telur þennan „tímapunkt“ fyrir Norður-Kóreu fund óheppilegan

Forseti Banda­ríkjanna segir í bréfi til Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu, að hætta þurfi við fyrir­hugaðan fund þeirra.

Donald Trump, Bandaríkja­forseti, hefur nú rekið sig á raun­veruleikann (Reality Check) segir New York Times, en hætt hefur verið við fund hans og Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu, sem fara átti fram í Singapúr 12. júní.

Í bréfi sem Donald Trump sendi til Kim Jong Un, og birt hefur verið á vef Hvíta hússins, segir að það sé ekki viðeigandi að eiga fund núna, í ljósi þess sem Kim Jong Un hefur látið hafa eftir sér - og túlka megi sem reiði eða yfirlæti - og því sé fundi þeirra slegið á frest.

Á vef Bloomberg má þó lesa, að Kim Jong Un vilji fund með Trump. Kim Gye Gwan, utan­ríkis­ráðherra Norður-Kóreu, segir í yfir­lýsingu, sem birtist fyrst á vef Bloomberg, að það sé vilji Norður-Kóreu að eiga fund.

Í bréfi Trumps kemur fram hótun um að beita kjarnorku­vopnum, ef ekki er orðið við því sem Banda­ríkin segja í yfir­lýsingu.

Banda­ríkin, með samþykki Sameinuðu þjóðanna, hafa beitt Norður-Kóreu efnahags­þvingunum vegna tilrauna þeirra með lang­drægar flaugar og kjarnorku­vopn. Í þvingunum hefur meðal annars falist að hefta innflutning á olíu til Norður-Kóreu og hefur það veikt efnahag landsins verulega, en um 25 milljónir manna búa í Norður-Kóreu, en um 50 milljónir í nágranna­ríkinu Suður-Kóreu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár